Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Negrastrákarnir

Ég má til með að linka á áhugaverðan pistil Gauta B. Eggertssonar um Negrastrákaumræðuna.

Einn lítill negrastrákur

Ég man eftir að hafa lesið þessa bók sem barn og ekkert spáð neitt sérstaklega í því að strákarnir voru svartir, þeir hefðu alveg eins getað verið grænir, gulir, hvítir, múmínálfar, strumpar eða jólasveinar.
Ég man líka eftir því að þegar ég var lítil þá vissi ég ekkert hvað svertingi eða negri var. Ég komst ekki að því fyrr en síðar þegar ég var uppnefnd svertingi, niggari eða negri. Og ekkert endilega af börnunum í kringum mig, yfirleitt var það fullorðna fólkið sem skaut á mig svona skemmtilegum viðurnefnum.
Þegar ég var lítil var ekki það mikið um negrakrakka á Íslandi að fordómar fólks færu á flug.

Ísland í dag er öðru vísi. Það er hætt við að krakkar sem lesa 10 litlir negrastrákar í dag munu lesa hana með öðru hugarfari en þegar ég var barn. Þau eru líklegri til að tengja negrastrákana við krakkana í skólanum eða á leikskólanum sem eru ekki eins og þau á litinn.

Ég ætla samt ekki að tjá mig meira um þetta mál, hvet ykkur bara til að lesa pistilinn hans Gauta.

Þar til næst...

B


Viva la Blog

Var á daglega bloggrúntinum og fór þá að hugsa hvað þetta er frábært fyrirbæri - bloggið.

Það er frábært að geta fengið fréttir af vinum og ættingjum á hverjum degi (stundum sjaldnar, eftir hvað þeir eru duglegir að blogga). Fréttirnar eru líka annars eðlis en þær sem maður fær þegar maður hittist augliti til auglits eða spjallar í síma. Maður fær frekar að lesa um litlu sigrana og sorgirnar á blogginu, eitthvað sem maður fær ekkert endilega að heyra þegar maður hittir viðkomandi kannski í jólaboði einu sinni á ári.
Svo eru það myndirnar! Alveg meiriháttar að geta ekki bara lesið fréttirnar af fólkinu sínu heldur fær maður að sjá þær líka Wink.

Mættu alveg fleiri af mínum vinum og ættingjum fara að blogga, skora á ykkur öll!

Þar til næst...

B


4 bedroom, 3 bathroom

Þetta hljómaði frekar hjákátlega því konan samþykkir að þiggja "4 bedroom, 3 bathroom" íbúð í Reykjavík.
Hérna í USA er ekki óalgengt að það sé klósett fyrir hvert herbergi í húsum/íbúðum en ég hef aldrei heyrt um íbúðir í Reykjavík sem hafa 4 svefnherbergi og 3 baðherbergi...

Þátturinn var samt frekar djúsí Wink.

Þar til næst...

B


mbl.is Ísland í Grey's Anatomy þættinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klósettsetur og krúsídúllur

Eitt af því skondnasta sem sem ég séð hérna í USAnu eru klósettsetur!

Eins og flestir vita þurftum við Hellisbúinn að skoða ca 300 hús áður en við fundum húsið "okkar". Þessi hús voru eins misjöfn og þau voru mörg.

Man sérstaklega eftir einu þeirra. Þar var allt veggfóðrað og teppalagt.
Hljómar svosem ekkert hrikalega nema hvað samsetningin var svona eins og eftir litblindan innanhússhönnuð sem hefði fengið brjálæðiskast í Lauru Ashley.
Allt rósótt og doppót og röndótt og köflótt - inni í sama herberginu!
Og ekkert endilega í sama litnum.

Eitt baðherbergið í þessu húsi var í svona martraðarmúnderingu, pífur og blúndur og dúllur útum allt og áðurnefndar doppur, rendur, rósir, túlípanar og ég veit ekki hvað uppum alla veggi.
Toppurinn var samt klósettið sjálft.

Klósettsetan og lokið voru glær.
Steypt inn í lokið og setuna voru smápeningar - quarters og dimes og meira að segja einn og einn dollar.
Ég get ekki ímyndað mér að það sé neitt betra að "do your stuff" sitjandi á klinki...?

Við sáum reyndar svona klósett á fleiri stöðum.
Eitt var með rósablöðum og annað var með fiskum (eða höfrungum, man það ekki alveg).

Haustseta

 

 

Fann ekki mynd af klinksetunni en þessi ætti að gefa ykkur hugmynd um hvað ég á við.

 

 

 

 

Þar til næst...

B


Míns eigins blogg

Það er ekkert smá sem ég hef vanrækt þessa bloggsíðu undanfarið.
Hef reynt að halda andlitinu með því að henda inn brandörum eða netprófum (eins og þetta hérna að neðan) en það kallast nú varla að blogga.
Málið er bara að það er ekkert sniðugt að halda úti tveimur bloggsíðum.

Þó svo að hin bloggsíðan mín hafi átt að vera bara upplýsinga- og fréttasíða fyrir fjölskylduna og þessi átt að vera svona Birgittubloggsíðan þá virðist lítið vera eftir af andagift þegar ég er búin með upplýsingaskylduna Wink.

Enda kannski ekki mikil ástæða til að halda úti tveimur síðum þar sem líklega eru sömu lesendur að þeim báðum.

Sé til hvað ég geri, kannski mun föstudagsleiðinn sem hellist alltaf yfir mig auðga andann það mikið að ég finni mig knúna til að tjá mig hérna líka.

Langar samt að gefa ykkur lítið ljós í skammdeginu

Ljós

 

 


Tarotspilið mitt

You are The Tower

Ambition, fighting, war, courage. Destruction, danger, fall, ruin.

The Tower represents war, destruction, but also spiritual renewal. Plans are disrupted. Your views and ideas will change as a result.

The Tower is a card about war, a war between the structures of lies and the lightning flash of truth. The Tower stands for "false concepts and institutions that we take for real." You have been shaken up; blinded by a shocking revelation. It sometimes takes that to see a truth that one refuses to see. Or to bring down beliefs that are so well constructed. What's most important to remember is that the tearing down of this structure, however painful, makes room for something new to be built.

What Tarot Card are You?
Take the Test to Find Out.


Matarboð

Hvað á maður að hafa í matinn í fyrsta matarboðinu í útlandinu?
Þegar fólkið sem kemur í mat er manni alveg ókunnugt?
Og maður veit ekki alveg hvað tíðkast að bjóða upp á í matarboðum í téðu útlandi?
Og þegar fólkið sem kemur í mat "þykir allt gott nema laukur og hvítlaukur" Pinch?
Og þegar maður á ekkert grill til að einfalda málið?
Og þegar eldunarhæfileikar betri helmingsins felast aðallega í pakkapasta og grilluðum samlokum Wink?
Og maður er eiginlega alveg andlaus?

Einhverjar hugmyndir?

B


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband