Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Hvaða vonir?

Mikið er þetta furðuleg frétt...

Hverjir binda hvaða vonir við þessar pillu?
Hverjum datt í hug að búa hana til?
Hvers vegna? Hvað er henni eiginlega ætlað að gera?
Búa til grannar konur sem eru til í tuskið?
Virkar pillan líka á karlmenn?
Eru konur nógu líkar snjáldurmúsum til þess að niðurstöðurnar séu marktækar?
Eða eru þeir kannski að reyna að búa til grannar snjáldurmýs sem eru til í tuskið? Svona fyrir snjáldurmúsakarlana?
Er kannski skortur á snjáldurmúsum?

Það vakna eiginlega BARA hjá mér spurningar við lestur þessarar "fréttar".

Þar til næst...

B

 


mbl.is Vonir bundnar við pillu sem örvar kynhvötina og dregur úr matarlyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Próflestrarblús

Jæja þá er maður kominn aftur í sama pakkann.

Sólin alveg á áætlun, ég að læra fyrir próf og hún er mætt á svæðið.
Í minningunni hefur þetta ALLTAF verið svona.
Próf = sól.
Sitjandi inni, mænandi útum gluggann, langa út í sólina en geta það alls ekki því maður er að læra fyrir próf eða í prófi eða nýkomin úr prófi að fara að læra fyrir næsta.

Svo býr maður á Íslandi svo það er ekki séns að ætla að læra úti því það er barasta ekki nógu hlýtt til þess. Sæi mig líka í anda með bækur og blöð fjúkandi útum allan Árbæ.
Fólk að finna misgáfulegar glósur um ritun, læsi og lestrarörðugleika, siðfræði og námskrár - uss, þær færu sko pottþétt beint í ruslið.

Lærdómspartnerinn bara farin að leggja sig svo ég get ekki einu sinni þóst vera að læra með því að bögga hana á MSN og hvað get ég þá annað gert en að bögga bloggið mitt?

Nákvæmlega 10 dagar eftir og svo kemur væntanlega rigningin en það verður líka allt í lagi því þá verð ég búin í prófunum Grin.
Sendið mér nú viskustrauma til að auðvelda mér lesturinn Kissing.

Þar til næst...

B


Hringlandi eggjastokkar :s

Lengi getur maður komið sjálfum sér á óvart...

Var að frétta að ein kunningjakona mín á von á barni sem er bara alveg frábært og meiriháttar.
Þegar ég heyrði þetta varð ég samt eiginlega bara down og depressed Frown.
Var heillengi að velta ástæðunni fyrir mér, tók langan tíma að komast að henni.
Ég varð bara svona hryllilega sorgmædd yfir því að vera búin að ákveða að eignast ekki fleiri börn.
Finnst skelfileg tilhugsunin um að upplifa þetta aldrei aftur, að ætla aldrei aftur að vera með pínulítinn púka í fanginu.
Ekki það að stóru börnin mín séu ekki best í heimi eða kannski einmitt vegna þess að þau eru svo frábær.

Þetta hlýtur að rjátlast af mér - vakna á morgun og þakka guði fyrir að Hellisbúinn er ekki á landinu og því ekki hægt að taka afdrifaríkar skyndiákvarðanir í þessum efnum Wink.

Þar til næst...

B


Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.


Fínar dömur
: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.


Fínar dömur
: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.


Fínar dömur
: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.

Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.


Fínar dömur
: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara
.

Fínar dömur
: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. .  
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!  


Fínar dömur
: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín? 
 

Þar til næst...

B - alvöru kona


Brot úr "samræðum"

Sponsið: Hættu að skipta þér af!
Frumburðurinn: Hvað gerði ég?
Sponsið: Þú ert svo óþolandi skiptaafsamur!

Þar til næst...

B


Flís

Hvernig nær maður lítilli mjúkri og ljótri flís úr þykka hlutanum úr hægri lófa með flísatöng og vinstri hendi?

Vinstri hendin lætur ekki að stjórn í svona fínlega vinnu og þykkt skinn. Börnin treysta sér ekki í þetta, eru svo hrædd um að meiða mömmuna sína.

Og þetta er bara virkilega óþægilega sárt og vont - buhuhuhu (vantar alveg grátikall í tilfinningatáknin hérna).

Hvar er eiginlega Hellisbúinn manns þegar maður þarf svona mikið á honum að halda?
Mér finnst ég ekki alveg geta hlaupið heim til pabba þó ég fái flís, ekki þegar maður er að nálgast fertugt en  ætli það endi ekki bara þannig.

Þar til næst...

B - á hrikalega bágt


Berlín brennur

Mikið er þetta hrikalega sorglegt!
Agalegt að sjá þessi gömlu hús brenna, miðbærinn verður ekki svipur hjá sjón ef þau fara alveg.

Svo á maður auðvitað milljón og fimmtíu minningar úr Austurstræti 22. Þar var sko dansað og tjúttað fram á rauðar nætur þegar þetta hét Berlín (já, ég er eldgömul) og Astró.
Þetta er næstum eins og að sjá æskuheimili brenna - nei, kannski ekki alveg en samt...

Mikil mildi er að þetta gerist um hábjartan dag, býð ekki í það hvernig hefði farið um miðja nótt - hvað þá ef þetta hefði gerst að næturlagi um helgi.

Ég vona bara að slökkvistarfið muni halda áfram að ganga svona vel og að þeim takist að bjarga þessum húsum.

Þar til næst...

B


Hið ljúfa líf

Barcelona er æðisleg!
Held ég hafi sjaldan gengið jafn mikið (fyrir utan heimsóknir í mollin í Amríkunni) og sjaldan haft það eins hrikalega gott.

Átti hinn fullkomna afmælisdag í gær.
Var vakin með afmælissöngnum frá gormunum mínum og mömmu og pabba á Íslandinu, þau á leiðinni í vinnuna og skólann. Gaudigarður
Við Hellsibúinn komum okkur á fætur í rólegheitunum og nutum þess að vera EKKI að fara í skólann eða vinnuna. Svo tókum við ca 5 tíma labbitúr. Löbbuðum upp í Parc Guell sem er hannaður af Gaudi og er rosalega flottur og öðru vísi. gaudihúsÓtrúlegt hvað það var friðsælt þarna uppi á hæðinni miðað við lætin í borginni - alveg eins og að komast í annan heim.

Annars erum við að hugsa um að láta hanna fyrir okkur hús í Gaudístílnum þegar við erum orðin ógeðslega rík - haldiði að það tæki sig ekki vel út í Árbænum? Eða kannski bara í Öskjuhlíðinni?

Við (aðallega ég) vorum orðin frekar fótalúin þegar við vorum búin að þramma upp á hæsta punkt í garðinum svo við tókum bara taxa aftur niður á Catalunya torgið. Þar duttum við alveg óvart inn í H&M, Adidas, Benetton og fleiri búðir og ég keypti mér alveg helling af afmælisgjöfum - ekki leiðinlegt! Frábært að hafa svona góða ástæðu (afsökun) fyrir verslunarsýkinni Wink.

Hvíldum okkur svo inni á hóteli fram á kvöld en þá fórum við á Casino Barcelona. Verð nú að segja að það jafnaðist akkúrat ekkert á við Casínóin í Vegas, var eiginlega bara eins og bingó í Vinabæ í samanburði en það var hægt að rúlettast og fara í Black Jack og við létum það duga okkur. Ég hugsaði samt oft að enginn af dílerunum þarna hefðu fengið vinnu í Vegas, þvílíkur hægagangur og stundum klaufaskapur hjá þeim - ussumsvei.
Við náðum samt að vera á þvílíku blússi til miðnættis (afmælið mitt OG föstudagurinn 13ndi - þvílíkur happadagur!) en um leið og klukkan sló 12 var öskubuskuævintýrið úti og við töpuðum öllu saman á ótrúlegum hraða - öllu því sem við byrjuðum með + öllum gróðanum.
Við ákváðum að láta skynsemina ráða og að reyna ekki að vinna upp tapið enda var þetta orðið ágætt.

Dagurinn í dag á bara að fara í leti og leti og leti. Kannski taka einn stuttan göngutúr, kannski bara hanga inni á herbergi og gera ekki neitt, kannski bara rölta um og kíkja í búðir eða setjast á kaffihús og skoða fólk - kemur bara í ljós.

Ég á reyndar ennþá eftir að finna alla þessar brjálæðislega flottu skóbúðir sem allir tala um. Hef sko svipast um eftir þeim en bara séð þessar týpísku sandalabúðir eða íþróttaskóbúðir. Kannski bara ágætt svosem, hef ekkert voðalega mikið pláss eftir í fluffutöskunni minni - gæti samt líklega smeygt þar oní einu litlu pari af skóm eða bara skilið gömlu, lúnu gönguskóna mína eftir en bara fyrir rétta parið!

Þar til næst...

B


Akureyri og Barcelona

Nýkomin frá Akureyri og á leiðinni til Barcelona Smile.
Við fjölskyldan fórum Norður um  páskana og áttu geggjaða daga í Hlíðafjalli.
Fullorðna (og hálffullorðna) fólkið fékk einkakennslu og börnin fóru í skíðaskólann og loksins erum við farin að geta staðið á skíðunum niður heila brekku.
Börnin öll orðin ótrúlega fær, Hellisbúinn líka, það er eiginlega bara mamman sem þarf að herða sig.
Er nefnilega algjör gunga Shocking.
Þoli svo illa svona hraða, sérstaklega nið'rímóti.
En þetta hlýtur að koma einhvern tíma.
(Eða ekki)

Nenni líka ekkert að hugsa um snjó og skíði núna því ég er á fullu að undirbúa Barcelonaferð.
Búin að liggja á netinu og safna í risastórt skjal öllu því sem mig langar að skoða, smakka, sjá og njóta.
Vona bara að ég komist yfir þetta allt saman.
Vona líka að skólinn muni bíða þessa bætur, prófin byrja jú bara eftir 3 vikur!
Jæja, það kemur bara í ljós, í versta falli fell ég bara Tounge.

Þar til næst...

B


Nýtt lúkk

Á tímamótum þarf maður stundum að skoða sjálfan sig og endurskilgreina.

Ég komst að því að ég er ekki svarthvít lengur, heldur er ég marglituð kona með allt í gangi.

Þar til næst...

B


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband