Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Þruma úr þátíðinni

Fyrir þá sem langar í smá nostalgíukast, smá fliss yfir hallærisleika 9. áratugarins og ágætisskemmtun mæli ég eindregið með Karate Kid.

karate_kidHorfði á með frumburði og sponsi og ég held að við höfum öll skemmt okkur jafnvel, þó það hafi verið af misjöfnum ástæðum.

Hef aldrei séð jafn svakalega brókað fólk á ævinni (nema væntanlega þegar ég horfði í fyrsta skipti og fannst þetta hipp og kúl). Athyglisvert hvað buxnastrengirnir hafa lækkað ískyggilega síðustu ár.

Alla vega - fínasta skemmtun fyrir alla, konur og kalla, krakka með hár og allt það.

Þar til næst...

B


Vetrardvali

Ég held að ég sé ekki komin af öpum.
Miðað við hegðun mína undanfarna daga er ég komin beint af björnum.
Um leið og skammdegið hellist yfir byrja ég að safna í forðann fyrir dvalann.

Þá meina ég safna í fituforðann fyrir vetrardvalann.

Mig langar endalaust í brauð og súkkulaði og helst vildi ég ekki þurfa að skríða framúr bælinu til að nálgast það. Brauð, kók og súkkulaði borðað upp í rúmi.
Og sofa milli bita.

Ég held að þetta sé bjarnareðlið.
Vildi bara óska að ég ætti kósí híði hérna einhvers staðar sem ég mætti skríða í og láta mig hverfa í svona 5-6 mánuði - þvílíkur draumur!

Þar til næst...

B


Klukk

Ég var klukkuð fyrir þó nokkru en hef verið mjög vant við látin undanfarið og því ekki komist í að svara fyrr en núna Tounge.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Ég skúraði gólf, þreif salerni og flokkaði dekkjanagla í Hjólbarðahúsinu.
  • Ég blandaði vodka og brennivín í kók, asna og stöku Brjáluðu Bínu í Hollý (ekki wood)
  • Ég steikti bestu borgara í bænum á Eikaborgum
  • Ég blaðraði í símann með frábærum skvísum (og stöku gæja) hjá Icelandair

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  • Lord of the Rings (allar saman)
  • Grease
  • Rocky Horror Picture Show
  • The Wizard of Oz

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Laugarnesvegi
  • Efstasundi
  • Árbæ (6 eða 7 stöðum)
  • Ardsley, NY

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Friends
  • Heroes
  • Næturvaktin
  • So You Think You Can Dance

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Mallorca (hér og hvar um eyjuna)
  • Las Vegas
  • Hálsakot
  • Ísafjörður

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  • Mbl.is
  • Blakkur
  • Mentor
  • FaceBook

Fernt matarkyns sem ég held upp á:

  • Fiskur
  • Lambakjöt
  • Súkkulaði
  • ... bara súkkulaði aftur

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
(Ég er annars lítið í að lesa bækur aftur, nema fyrir skólann, það er svo mikið af bókum sem ég á eftir að lesa að ég hef alltaf eitthvað nýtt á náttborðinu)

  • A Song of Ice and Fire
  • Enders Game
  • Ísfólkið
  • Stephen King (hef lesið nokkrar oftar en einu sinni)

Fjórir bloggarar sem ég klukka:
(Þá vandast málið, svo fáir sem ég þekki sem blogga eitthvað og enn færri bloggarar sem lesa bloggið mitt)

  • Fína frúin í H100
  • Hibba Bibba súperskutla
  • Helena Lil Sys (það má reyna þetta - Helena ég skora á þig!)
  • Hver sem þetta les og langar að vera klukkaður má taka þetta til sín og svara klukkinu. Væri þá gaman að fá að vita af því í athugasemdum Wink

Þar til næst...

B


Dularfullar fötur

Gatan sem við fjölskyldan búum við er nokkuð merkileg.
Fyrir ofan og neðan götu eru raðhús - ca 10 hvorum megin - sem er svosem ekkert merkilegt. Það sem er sérstakt er að fyrir ofan götu er meðalaldurinn svona 20-25 ára en fyrir neðan götu um 70 ára (við fjölskyldan drögum það meðaltal verulega niður).

Öll húsin eru stór og bjóða uppá barnamargar fjölskyldur og fyrir ofan götu eru 4, 5, 6 og jafnvel 7 manns í hverju húsi. Fyrir neðan götu erum við stærsta fjölskyldan - 4 stykki.

Þar sem ég er mestmegnis heimavið sé ég stundum eldri borgarana sitt hvorum megin við mig bardúsa á daginn. Og það er ýmislegt bardúsað - í garðinum, í bílskúrnum, við tunnurnar, í beðunum og á bílastæðinu. Það sem ég skil aftur ekki er hvað eldri mennirnir hérna allt í kringum mig eru alltaf að vesenast með fötur..
Svona stórar hvítar plastfötur, svona eins og majonesið kom í á hamborgarbúllunni sem ég vann á í gamla gamla daga.
Þannig fötur eru bornar út í bílskúra og til baka á hverjum degi - og stundum nokkrum sinnum á dag og mikið ofsalega get ég stundum orðið forvitin.
Ég hef ekki lagt í að spyrja þá hvað þeir geyma í fötunum sínum, sambandið er ekki alveg á þeim nótunum - meira á "óskapans læti eru þetta í börnunum þínum alltaf" eða "krakkar! farið úr garðinum! -nótunum"
Ég verð því bara að halda áfram að ímynda mér hvað þarna gæti leynst...

Þar til næst...

B


Njóti njóti njóti

Nú tifa síðustu mínúturnar í alvöru lífsins. Skólinn byrjar eftir nokkra klukkutíma.

Hlakka heilmikil til að byrja í skólanum en það er samt svo gott að vera í fríi Wink. Ætla að reyna að njóta þessara mínútna í botn, mjólka úr þeim hvern dropa og hverja sæluna sem í þeim finnst.

Farin að njóta,

B


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband