30.5.2008 | 12:48
Ekkert að frétta
af okkur á Krossgötunni.
Ég er aðeins farin að moka útúr skápum og henda í kassa, ekkert alvarlegt þó. Nenni varla að byrja á fullu alveg strax og búa svo innan um pappakassa í 3-4 vikur.
Allir hressir, nóg að gera í skólunum hjá krökkunum. Kara er komin með próftöflu því hún tekur lokapróf í nokkrum fögum, líklega þó bara 2.
Árni er að klára ýmiss verkefni sem á að skila fyrir skólalok.
Lítil breyting hjá Evu Dröfn, bara mikið fjör og gaman.
Ég er komin með allar einkunnir, er virkilega ánægð með þær - 8.5, 9, 9.5 og 9.5 - bara nokkuð flott hjá gömlunni held ég .
Og já, ég er komin í sama gírinn og krakkarnir, farin að telja niður dagana í brottflutning , ætti að vera teljari hérna til hliðar.
Knús og kram,
Birgitta og co
Ps. Bestu þakkir kæru tengdaforeldrar fyrir myndirnar, þótti nú myndirnar af ykkur tveimur langskemmtilegastar, þið eruð algjört æði .
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)