Spring break eða A break from spring

Vorið er komið og grundirnar gróa...

VorlitirGeggjað veður í Ardsley, NY - glampandi sól, fuglakvak, flugnasuð, blómstrandi tré og runnar, iðandi lækjarspræna, stuttbuxnaveður, fuglar liggja á eggjum og lífið er ljúft.

Og við ætlum að fara í Spring break til Íslands Sideways. Nágranni minn, hún Karen, hló dátt þegar ég sagði henni þetta og spurði hvort við þyrftum að fá smá break from spring Wink. Svoldið flott hjá henni miðað við vorið hérna og vorið á Íslandi. Þau ætla til Argentínu og það er svolítill munur á því sem fer í töskurnar hennar - sumarföt, bikiní og sólarvörn, við pökkum niður öllum vetrarfötunum okkar, skíðaskónum og frostbitsvörn.

Ætlum svo reyndar að skilja öll vetrarfötin og skíðaskóna okkar eftir á Ísalandinu , lítil von til þess að þau verði notuð meira hérna.

Nú er komið svona skilti á lóðina hjá okkur:
Hús til sölu
Við erum búin að bóka gám 26.júní og flug heim 3.júlí - jeyyy Tounge. Ætlum að taka okkur smá "sumarfrí" í Atlantic City áður en við komum heim. Við verðum svo á þvælingi um Ísland fram í ágústbyrjun þegar við fáum gáminn og húsið okkar heima afhent.
Ég get þá hætt að vera grasekkja í Ammríku og farið aftur í að vera grasekkja á Íslandi Wink.

Höldum heim á fimmtudaginn, vona að ég nái að hitta ykkur sem flest.

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar og símtölin, var alveg yndislegt að heyra í og frá ykkur Kissing.

Knús og kossar, Birgitta og co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Síðbúin afmæliskveðja frá mér... kíki orðið reglulega hér við, bara skemmtilegt að lesa bloggið þitt Birgitta, svona milli þess sem ég er að bera sauði í hnédjúpum snjó... ekki beint vorlegt hér heima eins og er, en hlýtur að fara að koma

Sigga Þ. (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 12:11

2 identicon

Góða ferð!

Edda (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 08:53

3 identicon

Það er líka komið vor á íslandi, reyndar soldið grátt og kalt :P. En segi bara eins og Edda..

GÓÐA FERÐ!!!

Marta (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband