25.6.2008 | 12:53
Aukastress - update
Ekki að það hafi verið mikið stress í gangi hjá okkur - sem betur fer - allir voðalega slakir.
Það breyttist aðeins í gær.
Eimskip hafði samband (loksins!) og þá er ekkert öruggt að þeir geti staðfest gáminn til okkar á morgun . Jafnvel ekki fyrr en á föstudaginn.
Og við búin að breyta fluginu okkar og alles.
Og panta flutningamenn til að hjálpa okkur - á morgun.
Og fá Maríurnar mínar til að koma og þrífa húsið - á föstudaginn.
Svona lítur borðstofan okkar út í dag .
Það eru samt allir í svo góðum gír að þetta náði ekkert að hræra (mikið) í okkur. Ef til kemur þá breytum við bara plönunum skv. því.
Fer samt svoldið illa með Planið að vita þetta ekki af eða á...
Update: Eimskip náði að redda málunum og gámurinn verður kominn - á undan áætlun! - fyrir hádegi á morgun .
Birgitta
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:45 | Facebook
Athugasemdir
Jesus, þetta er svo ótrúlega mikið, svo er allt dótið á veggjunum og í loftunum, ljós, speglar, myndir og alles - ojojo við pabbi hefðum átt að vera í fríi og hjálpa ykkur - gerum það næst.
Mikið hlökkum við til að fá ykkur í H-kotið.
Luv - mamma
Mamma (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 16:45
So long. Farwell. Auf wiedersehen, goodbye... var þetta ekki svona?
Sendi þér aukahendur í huganum! Góða ferð heim. Hlakka til að fá heimkomufærslu
Edda (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 07:20
Góða ferð
góða ferð
góða feeeeeeeerð
(vestfirsk ferðakveðja)
Marta (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.