7.8.2008 | 09:49
Uppgjör
Ég var spurð að því um daginn hvort ég saknaði ekki New York. Ákvað að svara því ekkert strax, spá ekkert í það fyrr en hlutirnir væru komnir í eðlilegt horf hérna heima og allt komið á eðlilegt ról.
Og núna get ég alveg sagt að það er slatti sem ég sakna.
Ég sakna þess að fá skemmtilegar heimsóknir í marga daga þar sem maður getur verið að dandalast í búðum, börum og veitingastöðum og hafa það gaman og gott. Ég held að það sé lítill séns á slíkum heimsóknum hingað í B12.
Ég sakna allra búðanna minna. Bæði matvöruverslananna, með öllum nýju og fersku ávöxtunum og hrikalega flotta úrvalinu, og auðvitað allra hinna búðanna líka.
Ég sakna þess að geta ekki skotist niður á Manhattan í dagsferð - Reykjavík er fín en ekki alveg jafn stórfengleg
Ég sakna ruslakallanna minna . Þeir komu 2svar í viku og tóku rusl og einu sinni í viku komu þeir og tóku pappa og/eða plast. Semsagt mjööög auðvelt að endurvinna.
Ég sakna líka útsýnisins af veröndinni. Það breyttist á nokkurra vikna fresti og var alltaf jafn fallegt:
Vona að það sé hægt að smella á myndirnar og stækka þær þannig að þetta sjáist betur. (og já, þetta er ég að dunda mér við í sumarfríinu af því að ég hef EKKERT betra að gera ).
Og síðast en ekki síst sakna ég Maríanna minna á þriðjudagsmorgnum, syngjandi og trallandi, skúrandi og skrúbbandi. Það er ekki séns að ég nái að búa jafn vel um rúmin og þær - sama hvað ég reyni.
Það sem vegur samt upp á móti þessu öllu saman er hvað börnin mín eru frjáls og ánægð hérna heima. Þau eru valsandi um allan Árbæinn með vinum sínum, skjótast í sund, í hjólatúra eða bara heimsóknir, án þess að ég þurfi að bóka slíkt með 2ja vikna fyrirvara og án þess að ég sé með hjartað í buxunum af áhyggjum.
(Svo er líka miklu auðveldara að gefa þeim að borða hérna ).
Knús í kotin,
Birgitta
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ókei, búin að fatta; ekkert komment ekkert blogg, só:
Ég sakna stóra rúmsins hennar Evu í stóra herberginu hennar, útsýnisins yfir Álagaskóginn, Sjónhverfinga úr lærdómsherbergi - en mest sakna ég þó Mario Badescu og dekursins þar.
En allt þetta fellur í skuggann fyrir gleðinni yfir því að geta sest upp í Mözdu 3, keyrt í korter (með viðkomu í bakaríi) og kíkt í kaffi.
Marta (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 21:43
Svo er auðvitað gamla settið í Hraunbænum svo rosalega ánægt að þið eruð komin heim :-)
DB (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 16:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.