Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
31.8.2007 | 16:43
So long, Farewell, Auf wiedersehen, Goodbye
Sit hérna á flugvellinum og er að hugsa til allra þeirra sem ég náði ekki að kveðja. Þá áttaði ég mig á því að ég kem aftur í byrjun október og ákvað að ég skyldi bara ná að kveðja alla þá. En þetta eru ansi margir og ég verð ekki lengi... kannski ég kveðji bara þá sem eftir eru þegar ég kem heim um áramótin? Og ef það verða ennþá einhverjir eftir sem hafa ekki fengið kveðjuknús, þá fá þeir það bara þegar ég kem heim næsta sumar .
Krakkarnir eru í læknisskoðun í þessum skrifuðu orðum. Ég fékk símtal frá þeim áðan og þurfti að rifja upp í snarhasti hverjir eru með nefkirtla, hverjir með hálskirtla og eitthvað í þeim dúr - það gekk ekkert alltof vel en það hlýtur að bjargast.
Ég er vel byrg af skólabókum fyrir flugið, sé ekki fram á að fá jafngóðan lærdómsfrið í 6 heila klukkutíma næstu vikurnar svo ég ætla að reyna að nýta þennan tíma vel og læra mikið. Er með Laxdælu, Forn handrit og bókmenntafræðigreinar og hlakka bara til að sökkva mér í þetta allt.
Farið nú öll vel með ykkur, verið góð við hvort annað og dugleg að hafa samband, hvort sem það er í tölvupósti, síma eða eitthvað annað.
Ég ætla að vera dugleg að setja inn fréttir af okkur svo þið getið fylgst með framvindu mála í amríkunni.
Knús og kram í klessu,
Birgitta
29.8.2007 | 21:38
Bólusetningar og fleira
Það verður víst einhver bið á myndum, við fáum líklega ekki að kíkja í heimsókn fyrr en á laugardaginn en það góða við það er að þá fæ ég að fara með .
Það er lítið nýtt að frétta nema hvað þegar Undramundur arkaði með börnin á skólaskrifstofuna til að skrá börnin í skóla, voru honum afhentar þrjú stykki umsóknir sem hver var álíka þykk og íslensk Símaskrá. Hann ákvað að reyna ekki að fylla þetta út á staðnum, börnin orðin frekar óþolinmóð eftir hálftímann. Við nánari skoðun á umsóknunum kom í ljós að það var ýmislegt sem við höfðum ekki áttað okkur á að við þyrftum að hafa meðferðis til að börnin fengju skólavist. Þar á meðal eru bólusetningarvottorð, þinglýstan leigusamning, 2 contact aðila aðra en foreldra og fleira í þessum dúr. Börnin þurfa öll að fara í læknisskoðun og líklega fara þau í einhverjar bólusetningar sem eru ekki gefnar hérna.
Dagurinn í dag fór því í að hafa upp á bólusetningarvottorðum (gat fengið þau í skóla barnanna) og koma þeim á réttan stað. Undramundur er að finna einhvern skottulækni til að skrifa upp á "Clean bill of health" fyrir börnin og vonandi tekst honum að koma umsóknunum í skólann fyrir helgi.
Ég er komin á fullt í mínum skóla og mikið ofsalega er það gaman . Ég vildi óska þess að ég hefði náð að njóta þess að vera í skóla þegar ég var yngri - eða bara að ég hefði fengið að taka grunnskólanámið núna - ég gæti alveg hugsað mér að vera í skóla forever after.
Segi þetta gott í bili, þarf að fara að lesa Eldfærin á dönsku og byrja að "hraðlesa" Laxdælu .
Birgitta
27.8.2007 | 18:18
Börnin farin
Þá eru börnin farin út með pabba sínum.
Ég skal alveg viðurkenna að ég hafði bara hlakkað pínu til að eiga smá tíma ein með sjálfri mér eftir að hafa verið með börnunum í allt sumar en úff púff hvað þetta var erfitt . Er ekki frá því að nokkur tár hafi laumast niður kinn á leiðinni frá flugvellinum.
Það er svo skrítið hvað það er ólíkt að skjótast sjálfur til útlanda og börnin bíða heima - að vera sá sem bíður heima er ekkert gaman.
Núna langar mig barasta ekkert að vera ein með sjálfri mér, langar bara að vera í flugvélinni með Undramundi og ormunum .
Bíð samt spennt eftir að hann sendi mér myndir af slotinu ógurlega, skal pósta einhverjum þeirra hingað inn um leið og þær berast.
Birgitta
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2007 | 08:46
Krossgata
Þetta gekk !
Undramundur hringdi seint í gærkvöldi, búinn að undirrita samninginn og það sem meira máli skiptir, kominn með undirritun frá eigandanum líka! Ég bað hann nú að fara vel yfir samninginn og athuga hvort það væri ekki 100% allt rétt og enginn séns fyrir eigandann að bakka útúr þessu og þetta stemmir allt .
Við fjölskyldan erum því loksins komin með hús. Við flytjum á Krossgötu 11 í Ardsley, NY.
Húsið fáum við afhent 4.september en stefnan er að fara út eitthvað fyrr svo við getum verið tilbúin með öll húsgögn, raftæki og aðrar nauðsynjar um leið og við fáum afhent og byrjað strax að púsla okkur inn.
Það er hæpið að okkur takist að flýta afhendingardegi en við fáum að fylla bílskúrinn svo við getum verslað eins og sjúklingar, hrúgað öllu í skúrinn og byrjað strax að koma okkur fyrir um leið og við fáum afhent.
Málið er nefnilega að skólarnir byrja 6.september og mér finnst eiginlega lágmark að börnin eigi rúm að sofa í og morgunmat í ísskápnum þegar skólinn byrjar.
Þetta bjargast allt saman einhvern veginn - við erum alla vega komin með hús.
Og það er ekkert smá hús !
Minnir að hjónaherbergið sé 40+ fermetrar. Ég segi "minnir" vegna þess að ég man ekki alveg hvernig húsið lítur út. Við skoðuðum svo mörg hús í síðustu ferð að ég er farin að rugla þeim öllum saman. Man samt að mér líkaði það vel svo það hlýtur að vera gott .
Það er alla vega nóg pláss fyrir gesti . Byrja að taka bókanir 10.september .
Það er semsagt bara gleði gleði.
Birgitta
21.8.2007 | 13:56
Beðið í rigningunni
Við bíðum enn eftir að fá fréttir frá Undramundi í Amríkunni. Hann er þar úti núna að reyna að ganga frá okkar málum svo við getum nú farið að drífa okkur út.
Það er voðalega notalegt að bíða, sitjum öll í stofunni og hlustum á rigninguna bylja á þakinu. Sumir að glápa, aðrir að tölvast og enn aðrir að lesa.
Ferlega kósí!
Set inn fréttir um leið og þær berast.
Birgitta
19.8.2007 | 10:54
Kannskifréttir
Nú er að komast smá skrið á okkar Ameríkumál.
Ég er samt svo hjátrúarfull að ég ætla ekkert að vera að básúna þeim fréttum fyrr en málin eru komin alveg á hreint.
Ef allt gengur að óskum förum við fjölskyldan út til NYC næstkomandi föstudag til að kaupa eitt stykki innbú. Ég þarf svo reyndar að koma aftur til Íslands í vikunni á eftir til að fara í skólann en líklega verða Gummi og börnin bara úti á meðan og klára að versla. Og vonandi fáum við svo afhent daginn eftir að ég kem út aftur.
Nánari fréttir um húsið og allt það koma síðar.
Birgitta
13.8.2007 | 14:20
Engar fréttir eru (ekki) góðar fréttir
Ástandið er orðið frekar þreytt.
Það er enn ekkert að frétta af afhendingardegi svo ég get lítið Planað og ekkert gert.
Við flengjumst núna á milli góðviljaðra ættingja - búin að vera í nokkra daga í Bústaðahverfinu, erum núna hjá múttu í besta hverfinu og flytjum á miðvikudaginn í Sundahverfið.
Ég skal alveg viðurkenna að þessi þvælingur á mjög illa við mig og það á enn verr við mig að vita ekki nákvæmlega hvenær ég flyt út.
Þetta er samt ágætis æfing í þolinmæði og ævintýramennsku, vona bara að ég komist gegnum þetta heil á geði .
Birgitta
7.8.2007 | 10:57
Flutningar og húsamál
Nú erum við loksins búin að afhenda húsið okkar og að verða búin að koma okkur fyrir og þá hef ég smá tíma (og orku) í að skrifa fréttir .
*Já Edda Björk, þetta er alveg með ólíkindum með okkur frænkurnar! Ég held bara að ömmur og afar hafi sett puttana í þetta og séð til þess að við færum í rétt hús *
Síðasta vika er búin að vera hreint lygileg hjá okkur. Við fengum að vita sl. mánudag að við hefðum misst húsið sem við vorum búin að kaupa (að ég hélt) sem þýddi það að við Gummi þurftum að rjúka út til USA á miðvikudaginn. Við skoðuðum nokkur hús í New Jersey og nokkur í Scardale-hverfinu í New York. Okkur leist best á eitt húsið í NJ en þegar við fórum að kanna skóla og slíkt þá kom það frekar illa út. Við ákváðum því að halda okkur við hverfið í NY og gerðum tilboð í 2 hús þar. Þau voru bæði samþykkt svo nú erum við að bíða eftir að pappírsvinnan klárist alveg þangað til við getum sagst vera komin með hús.
Við komum svo heim síðasta föstudagsmorgun og fórum þá á fullt í að losa húsið okkar. Við erum svo heppin að litla systir fór í sumarfrí til Spánar svo við fengum að koma okkur fyrir í flottu íbúðinni hennar og þurftum því ekki að sofa innan um pappakassa og svarta ruslapoka .
Þar sem það borgaði sig ekki fyrir okkur að flytja búslóðina með okkur ákváðum við bara að reyna að selja hana. Sendum auglýsingar á vini og vandamenn - og á Barnaland. Þetta gekk svo vel að við erum búin að losa nánast allt , bara ein kommóða og 2 skrifborð eftir.
Þetta gekk ótrúlega vel og við náðum að losa húsið og afhenda það í gærdag.
Núna erum við bara að jafna okkur á hasarnum og munum líklega ekki hreyfa okkur í allan dag. Nema við förum í göngutúr og áttum okkur aðeins á umhverfinu og hvað er hægt að gera hérna í kring.
Ég set svo inn fréttir þegar húsamál fara að skýrast, vonandi verður þetta orðið 150% núna næstu daga og ég get farið að huga að því að koma okkur "heim".
Birgitta