Vegna fjölda áskoranna

ætla ég að henda hérna inn smá færslu um Flórídaferðina sem er rétt rúmlega hálfnuð hjá okkur.

Ástæðan fyrir bloggleysi undanfarinna daga er sú að húsmóðirin gleymdi Löbbunni sinni heima. Ég tók töskuna undir hana, hleðslusnúru og straumbreyti, músina og allt skóladótið en tölvan sjálf varð eftir heima. Gleymdi líka sjampói, kremum og einhverju fleiru - á sjálfa mig, en sem betur fer eru allir aðrir fjölskyldumeðlimir með allt sitt - það er nú fyrir öllu Wink.

Leið1Við lögðum af stað hingað "niðreftir" á föstudegi eftir skóla og ferðin byrjaði ekki vel. Vorum stopp í 2 tíma í ekta amerísku umferðaröngþveiti, beið bara eftir að Undri breyttist í Michael Douglas í Falling Down og færi að gera skandala en þetta hafðist allt á endanum. Það var rétt um það leyti sem við fórum að komast á skrið að ég fattaði að ég hafði gleymt Löbbu minni en þá var auðvitað ekki inni í myndinni að snúa við.
Við keyrðum fram á kvöld og enduðum í Sandston, Virginia.
GoKartStoppuðum þar rétt yfir blánóttina og í morgunverð og héldum svo af stað aftur. Ákváðum reyndar að þetta væri alltof lýjandi og settum því stefnuna á stuðstað þar sem við gátum teygt aðeins úr okkur. Þar gátum við farið í alls konar leiki og GoKart sem var algjör snilld. Leið2Keyrðum svo áfram í suður þar til við komum í Savannah, Georgia þar sem við gistum. Stoppuðum aðeins þar, sulluðum í lauginni næsta morgun og skoluðum af okkur ferðarykið áður en við lögðum í síðasta legginn. Hann var sem betur fer stystur því það voru allir komnir með alveg nóg af því að húka í bíl.
Það var alveg yndislegt að koma hingað í Windsor Hills, Kissimmee, húsið er risastórt og allt til alls hérna. Það eru sérherbergi fyrir alla og allir með sér baðherbergi. Í bílskúrnum er svona game room með billiardborði, þythokkí, rúllettu, fótboltaspili, leikjatölvu og ég veit ekki hverju. Leið3Í garðinum er svo þessi fína sundlaug sem er náttúrulega bara eðal.

Við erum svo búin að vera á spani frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld. Erum búin að þræða halfan Universal Studios og fara í fullt af tækjum og sýningum þar, fara tvo daga á ströndina, sjá Blue Man Group - sem var geggjað - og framundan er WetnWild, meira GoKart, klára Universal og meiri strönd. Hvenær við ætlum að gera þetta allt á þessum tveim dögum sem við eigum eftir veit ég ekki alveg en það hlýtur að hafast.

Við Undri erum reyndar aðeins farin að kvíða heimferðinni, það var ekki alveg það gáfulegasta í heimi að keyra alla leiðina hingað - heilar 1150 mílur eða 1850km ca. Athugðum m.a.s. hvort það væru ekki lestar sem gætu tekið okkur og bílinn uppeftir aftur en það er víst ekki. Við hljótum að þrauka þetta í sameiningu fjölskyldan, gekk nú alveg lygilega vel á leiðinni hingað. Lentum svo reyndar í því að fá argentínskan prófessor á fleygiferð í afturendann á Bjútí okkar (bíllinn Joyful) en það var alveg 100% honum að kenna því við (eða eiginlega ég því ég var að keyra Halo) vorum grafkyrr á rauðu ljósi þegar þetta gerðist. Hann var svo sorry aumingjans maðurinn að maður gat ekki annað en vorkennt honum, sérstaklega þar sem mig grunar að ástæðan fyrir einbeitingarmissi mannsins hafi verið börnin í aftursætinu. Ekki að mín börn hagi sé nokkurn tíma illa í bíl, eru alltaf eins og ljós Whistling).

Ætla að segja þetta gott í bili, get vonandi klárað ferðasöguna áður en ég held heim til Íslands á sunnudagskvöldið. Einhverjar myndir komnar í Flórídaalbúmið.

Knús og kossar til ykkar frá okkar,
Birgitta

 


Flórída - here we come!

Það er mikil spenna í kotinu þessa dagana.
Eftir tvo daga keyrum við úr subbinu og slabbinu í Ardsley og höldum í sól og blíðu Grin.
Og heil vika í fríi frá skólunum!

Við ætlum að keyra niðreftir, sáum að við gætum gert ansi margt fyrir andvirði flugfars og bílaleigubíls og ætlum því að leggja á okkur 19 tíma akstur. Tökum þetta í þrem leggjum á leiðinni niðreftir og tveim á leiðinni uppeftir aftur. Stoppum semsagt og gistum og tökum þessu rólega.

Veðrið hérna er búið að vera ferlega leiðinlegt. Í gærkvöldi var "snowstorm" (ca 4cm jafnfallin snjóföl og smá gola) og síðan í morgun er búið að rigna svona útlandarigningu, það er næstum eins og að ganga undir foss að fara út. Snjór í gær og rigning í dag = ökklahátt slabb yfir öllu.
FljótiðÍ fyrsta skipti er hægt að tala um að það sé á í garðinum hjá okkur, ekki lækur, vonandi sést áin okkar á myndinni.

Það er mest lítið að frétta annars. Bætti nýjum myndum í albúmið, mest einhverjar dýramyndir Wink. Það er nefnilega ótrúlegt dýralíf í garðinum hjá mér. FálkiUm daginn hoppaði fálki upp á veröndina hjá mér, nánast beint í flasið á mér. Veit ekki hvoru okkar brá meira. Eitthvað var hann lemstraður greyið því hann gat ekki flogið burt heldur hoppaði hérna um allan garðinn þar til hann hvarf.

 

Ég verð vonandi nettengd í fríinu og set inn fréttir og myndir og eitthvað sniðugt.

Birgitta og co


Montblogg

Ég kemst bara ekki yfir það hvað börnin mín eru dugleg.

Flaug í gegnum hugann á mér um daginn, eftir að ég hafði komið öllum börnunum í skólann, hvað það er í rauninni fáránlegt að ég skuli senda þau svona frá mér án þess að vita almennilega hvert. Ég hef auðvitað komið inn í skólana þeirra og hitt eitthvað af kennurunum en ég þekki í rauninni ekki almennilega hvað þar fer fram svona dags daglega. Þetta er ekki eins og heima þar sem maður hefur sjálfur gengið í gegnum ferlið og veit nokkurn veginn hvernig allt gengur fyrir sig.
Við þessar pælingar fattaði ég ennþá betur hversu miklar hetjur þessir ormar mínir eru. Þetta er lítið mál fyrir mig (miðað við þau alla vega), ég þurfti ekki að mæta á nýjan og ókunnugan vinnustað og kynnast þar milljón nýjum reglum, nýju fólki og nýju umhverfi.
Ég þurfti bara að læra að rata í búðina Wink.

Svo voru Árni og Kara að fá einkunnir.
Þau eru bæði að bæta sig þvílíkt (og ekki var ástandið slæmt áður).

Árni Reynir fær einkunnir í öllum fögum. Hann stendur sig þvílíkt vel í lesfögunum - social studies og science og er mikið að bæta sig í ensku (móðurmálskennslu) - fékk m.a.s. 10 fyrir ljóð sem hann samdi Smile.
Í social studies er hann í alvöru mannkynssögu, er að læra um fornar þjóðir og er svo heppinn að þekkja margt úr tölvuleikjunum sem hann spilar sem mest eins og þjóðarbrotin, hvar þau voru staðsett landafræðilega, útlit þeirra og fleira (segið svo að tölvuleikir séu ekki til einhvers nýtir Wink). Í science er hann að læra allt um frumur, erfðir, bakteríur og sýkla og hugtökin eru svo flókin að oft þarf ég að grípa til orðabókarinnar þegar við lesum þetta saman. Stærðfræðin er mun þyngri en heima, en hún liggur vel fyrir honum (sem betur fer!) og hann stendur sig mjög vel þar.
Hann fær mjög góðar umsagnir frá öllum kennurum, hann stendur sig vel og sýnir framfarir Grin.

Kara fær einkunnir í öllum fögum nema tveimur, það eru stóru lesfögin - saga og líffræði. ELL (english language learner) kennarinn hennar vill að hún nái betri tökum á hugtökum og slíku áður en hún fer að fá einkunnir. Umsagnirnar í þeim fögum eru samt alveg glimrandi góðar - báðir kennararnir mjög ánægðir með framfarirnar.
Stærðfræðin sem hún er í er svona menntaskólastærðfræði. Ég gat hjálpað henni fyrsta mánuðinn eða svo en það er ekki séns að ég skilji nokkuð í því sem hún er að gera núna. Þau Undri sitja löngum stundum yfir þessu og hún er svoddan snillingur að hún rúllar þessu upp. Hún á sko eftir að búa að þessu þegar hún kemur í 10. bekkinn heima í haust.

Eva Dröfn er ekki búin að fá neinar einkunnir síðan fyrir jól. Eigum von á að þær komi á næstu vikum. Hún stendur sig auðvitað eins og hetja líka og ég fæ reglulega að heyra frá Mrs. Fusillo hvað hún sé yndislega stillt og góð og ljúf (humm Whistling) og dugleg . Rámar eitthvað í að hafa heyrt sögu af ónefndum afa sem var víst eins og ljós í skólanum en ekki alveg sama ljósið heima hjá sér  - þetta er greinilega ættgengt Wink.

Eva Dröfn bauð mér í skólann sinn í gærmorgun. Krakkarnir í 3ja og 4ða bekk voru búin að safna áheitum og ætluðu að sippa til styrktar hjartaverndarsamtökum bæjarins.
Eins og Ameríkönum sæmir fór heljarinnar undirbúningur í þetta. Krökkunum var skipt upp í lið og hvert lið þurfti að vera í sérmerktum búningum og búa sér til nafn. Ég vissi reyndar ekki af þessu fyrr en daginn áður en Eva Dröfn var búin að redda sér þannig að hún var í merktum bol (sem einhver önnur mamma útbjó Undecided) og með allt á hreinu.
Launching LionsSipperíið fór fram í íþróttasal skólans. Ég átti von á, ja, ég veit eiginlega ekki hverju, en þetta var alveg heljarinnar fyrirtæki. Salurinn skreyttur hátt og lágt, skólastjórinn hélt ræðu, plötusnúður hélt uppi þvílíku fjöri og ég veit ekki hvað.
Fór næstum að hlæja þegar allir settu hönd á brjóst og fóru með trúarjátninguna (fánahyllinguna) - "I pledge allegience to the American flag..." - áður en þau byrjuðu að sippa, guð minn góður hvað það var ammmrískt!


SippaðKrakkarnir sippuðu svo til skiptis undir dúndrandi stuðtónlist, maður komst ekki hjá því að dilla sér með. Svo komu stundum lög sem eiga sér einhvern dans (svona eins og fugladansinn, makarena og þ.h.) og þá var svo gaman að sjá að það ÖLL börnin virtust kunna dansana. Þá fleygðu þau frá sér sippuböndunum, smelltu sér út á gólf og dönsuðu öll í kór.

Það ætti að birtast bráðum myndband af herlegheitunum hérna til hliðar (undir Nýjustu myndböndin) - það virðist ætla að taka óratíma að hlaðast inn.

Læt þessu monti mínu lokið í bili Tounge,

Birgitta


Á skíðum skemmt'ég mér tra lalla lalla lallala

Það var frekar skrítið ástand hérna á heimilinu síðustu helgi. Mamman var aaaalein í kotinu í rúman sólarhring meðan pabbinn skellti sér á skíði með afkvæmin.

Gormar í lyftuÞau skelltu sér á Hunter Mountain sem er í ca 2 1/2 TÍMA fjarlægð. Þar gistu þau á Friar Tuck hótelinu sem var eins og gamalt ítalskt óðalssetur. Pabbinn sagði reyndar að það væri orðið svoldið þreytt en krökkunum fannst þau vera eins og kóngafólk - svona getur upplifunin verið misjöfn eftir því hvað maður hefur lifað lengi (og ferðast mikið).
Krakkarnir á skíðumAðstaðan var víst rosalega fín, reyndar frekar langt síðan það snjóaði síðast en færið samt ágætt og veðrið gott. Þau fundu brekkur við allra hæfi, segja m.a.s. að mamman gæti alveg farið í litlu brekkurnar Tounge - sjáum til með það. Svo fóru þau í sund, gufu og pottana og höfðu það já, bara eins og kóngafólk held ég. Þau hefðu alla vega ekki fengið svona góða þjónustu hérna heima get ég sagt ykkur.

Mamman var nefnilega UPPTEKIN. Það stendur einhvern veginn þannig á í skólanum hjá mér núna að allir kennararnir ákváðu að rumpa af verkefnum og veseni núna í janúar og febrúar og hafa frekar slakara í mars og apríl. Þegar maður er í 4 fögum þá þýðir þetta ansi mikið álag og ég var hætt að sjá fyrir endann á þessu öllu saman.
Helginni var þess vegna eytt með annað augað á skjánum og hitt oní bók. Enda voru afköstin þvílík að ég er ennþá að ná mér niður aftur. Er meira að segja farin að vinna að verkefnum þarnæstu viku FootinMouth!
Ég verð samt að viðurkenna að það var frekar skrítið (og pínku ponsu scary) að vera alein hérna um nóttina. Rosalega var eitthvað dimmt. Og svoldið drungalegt. Og skrítin hljóð sem ég hef aldrei heyrt áður. Það var allavega voðalega gott að vakna og sjá að sólin (ekki Sólinn Wink) var komin upp og allt orðið bjart og fínt.

Það eru nokkrar nýjar myndir í febrúaralbúminu

Knús og kram í öll kot.

Birgitta


Lög og reglur

Það er ýmislegt í skólunum hérna úti sem er öðru vísi en við erum vön. Sumu var erfitt að venjast, sumt kom auðveldlega og sumt lærðist af reynslunni Smile.

Hérna eru dæmi um það sem er bannað:

  1. Bannað að fara út þegar það snjóar eða rignir.
  2. Bannað að fara út þegar það er kalt.
  3. Bannað að fara úr skónum inni í skólanum (sem skýrir væntanlega reglu 1).
  4. Bannað að vera á göngunum án þess að hafa sérstakan passa (hall pass).
  5. Bannað að vera með skólatöskuna sína í matsalnum.
  6. Bannað að vera með skólatöskuna sína í tíma.
  7. Bannað að sækja heimavinnuna sína í skápinn (lockerinn) eftir að tíminn er byrjaður (sjá reglu 3 hér að neðan).
  8. Bannað að fara úr skónum í skólabílnum, jafnvel þó þar sé eitthvað sem stingur mann í tána.

Hérna eru svo dæmi um það sem á/má gera:

  1. Það á að vera í skónum inni.
  2. Það á að mæta í skólann í íþróttaskónum þá daga sem það eru íþróttir (bannað að taka þá með sér og mæta t.d. í kuldaskóm (Evuskóli).
  3. Það á að nota 3 mínúturnar sem eru á milli tíma til að skila bókum í skápinn og sækja bækurnar fyrir næsta tíma (sjá reglu 7 hér að ofan).
  4. Það má vera í úlpum í tíma.
  5. Það má borða nammi, snakk og gos í skólanum (meina, það er selt í matsalnum).
  6. Kennararnir mega gefa nemendunum nammi þegar þeim dettur í hug (oft notað sem verðlaun).
  7. Það má fara til hjúkku og leggja sig ef maður er mjög þreyttur. Hjá hjúkku eru 4 legubekkir og teppi til þessara nota (High School).
  8. Það er bannað að fara út af skólalóðinni, nema maður sé kominn í 12.bekk.

Þetta eru helst þær reglur sem okkur þykja skrítnar. Svo eru margar reglur sem mætti alveg taka upp í íslenskum skólum eins og:

  1. Bannað að nota iPod og gemsa innan skólans.
  2. Bannað að tala í tímum, nema með sérstöku leyfi.
  3. Ekki hægt að komast inn á myspace, msn, eða síður sem tengjast á engan hátt náminu.

Það er mun meiri agi hérna en í íslenskum skólum sem er mjög jákvætt og verður til þess að börnin eru að fá meiri kennslu af því það fer enginn tími í eitthvað vesen.

Í stað jóla- og vorprófa eru próf á 2-3ja vikna fresti sem telja öll til lokaeinkunnar, ásamt öllu heimanámi og virkni í tímum.

Og fullt og fullt. Ég gæti örugglega skrifað heila ritgerð um þetta en læt þetta duga Wink.

Farið vel með ykkur,
Birgitta


Meira af veðrinu

Af því hún Marta var svo yndisleg að senda mér vídeóupptöku af alvöru íslensku roki þá ætla ég að endurgjalda henni með upptöku af amerísku óroki.

Það sést kannski aðeins á trjánum að það er hífandi rok, er samt ekki viss. Við erum að tala um að það var HÍFANDI rok, ekki bara smá gola. Það sem vantar í rokið hérna eru hljóðin - skil ekki hvert þau fara.

Mér varð þó að ósk minni og veðrið er ekki lengur kalt og stillt. Nú er rigning og rok en það er bara ekkert í líkingu við alvöru rigningu og rok. Rigningin fellur bara á millli vindhviða svo hún dettur bara beint niður og vindurinn er svona hógvær eins og þið sjáið á myndbandinu.

Læt þetta verða lokafærslu mína í flokknum Veður og veðurleysi, alla vega í nokkrar vikur Wink.

Knús,
Birgitta


Veðurblogg

Ég verð eiginlega að taka eina létta veðurfærslu. Og þá bara til að kvarta undan veðurleysinu í Ardsley.
VeðurleysiÞað er alltaf sama veðrið hérna - kalt, stillt og bjart. Búið að vera nákvæmlega þannig síðan ég kom frá Íslandi sem var 18.janúar. Í 9 daga!
Á meðan les ég yndislegar veðurfréttir frá Íslandi, eitthvað nýtt og spennandi á hverjum einasta degi.

Ég er alveg viss um að þetta hefur áhrif á geðslag þjóða, fólkið hérna þarf t.d. aldrei að hafa áhyggjur af veðrinu. Þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að fara í vinnuna í blíðskaparveðri og vera svo óvænt veðurteppt í vinnunni. Hérna stenst veðurspáin! Ég get skoðað veðurspá næstu 3ja daga og vitað upp á hár hvernig er best að klæða börnin í skólann þá daga. Gæti jafnvel lagt fram fötin þeirra fyrir vikuna og það myndi aldrei koma fyrir að þau væru vanbúin í skólanum.

Enda er það stórmerkilegt að fólkið hérna talar barasta aldrei um veðrið. Mikið er gott að fá smá útrás fyrir veðurspjallsþörfina Wink.

Við fjölskyldan erum búin að liggja í Næturvaktinni síðan um jólin - reyndar með löngum hléum vegna flakksins á foreldrunum en vorum að byrja aftur í gærkvöldi. Þættir eru auðvitað bara snilld og gaman að því hvernig þeir höfða til allra fjölskyldumeðlima þó það sé kannski ekki alveg á sama hátt. Það er verst að við getum ekki notað alla frasana nema innan heimilisins, höfum reynt að þýða þá á ensku en það hljómar ekki nærri því eins vel. Ég stakk reyndar upp á því að börnin prófuðu að nota "Sæll!" á krakkana í skólanum en þau eru eitthvað rög við það.
GeorgGeorgina

Lýk þessu á tveimur Georgs Bjarnfreðarsonar-eftirhermum Tounge.

Farið vel með ykkur,
Birgitta


Ripstik

Langaði að sýna ömmu og afa í Hraunbænum hvað krakkarnir eru orðin klár á Ripstik-inu sem þau fengu í jólagjöf.
Þau héldu Sirkussýningu fyrir mig í gær, ótrúlega flott. Kemur sér vel að hafa allt þetta pláss í kjallaranum Wink.

ripstikGræjan lítur svona út og er ferlega sniðug. Ótrúlega erfitt að halda jafnvægi á þessu en það er alveg frábært hvað krakkarnir eru orðin góð, þjóta hérna útum allt. Það er annað myndband hérna til hliðar í "Nýjustu myndböndin".

Knús,

Birgitta 


Loksins

Jahérna hér, ég er aldeilis ekki að standa mig í stykkinu, ekki búin að setja inn færslu í alltof marga daga.
Ég er samt löglega afsökuð, er búin að vera viku á Íslandi í skólanum og því ekki alveg með púlsinn á því sem var að gerast hérna í Ammríkunni á meðan.

BókaflóðSkólatörnin mín var rosalega skemmtileg. Það eru þvílík forréttindi að fá að læra það sem maður hefur mestan áhuga á. Önnin fer að mestu í bókalestur og greiningar bókmennta og mikið ofboðslega þykir mér þetta spennandi. Hérna er mynd af mestum hluta lesefnisins í vetur, það vantar þarna nokkrar bækur sem eru í pöntun og skila sér vonandi fljótlega.
Önnin verður samt frekar strembin, eins og sést kannski á myndinni, rosalega margar bækur sem ég þarf að lesa og mörg verkefni sem ég þarf að skila.
En það er bara gaman Smile.

Krakkarnir voru að vonum kátir að fá mömmurnar sínar heim. Segi mömmurnar því Auðbjörg kom með mér út til að hitta hana Köru sína. Þær ákváðu svo að eyða nóttu saman í stórborginni og eru því núna á Manhattan.

LaufasmölunVið hin erum bara búin að vera í rólegheitunum. Fyrir utan að krakkarnir tóku rosalegan laufaskurk í gær. Garðálfarnir okkar hrúguðu nefnilega öllum laufunum bara við vegakantinn og við erum búin að bíða síðan í nóvember eftir því að þeir kæmu og tækju hrúguna. Svo fengum við vinsamlega ábendingu frá bæjaryfirvöldum um að þetta væri komið gott svo Gummi setti börnin í vinnu. Þau eru búin að standa sig eins og ofurhetjur. Við erum nefnilega ekki að tala um 1-2 ruslapoka af laufum, þetta endaði í 15 pokum! Þegar ég kom heim höfðu þau verið að myndast við þetta í þrjá daga og kláruðu svo með trukki og dýfu í gær.


Framundan er svo skólatörn hjá okkur öllum. Þriðja "quarter" er að byrja í næstu viku hjá börnunum sem þýðir að þau fá minni stuðning en þau hafa fengið undanfarna mánuði. Þau eiga öll að geta höndlað það en það verður kannski ívið meira álag.
Í febrúar er ætlunin að keyra til Flórída (19 tímar Sideways) og eyða miðsvetrarfríinu þar í sólinni og sandinum.
Gummi verður á einhverju flandri næstu vikurnar og ég kem svo aftur í skólann í febrúar.

Blogga nú örugglega eitthvað fram að þeim tíma Wink.

Knús í kotin ykkar,

Birgitta


Undramundur Armbeygjustjóri

Ég hélt ég myndi nú seint segja þetta en ég er komin með nóg af því að vera í fríi. Það segir kannski eitthvað um hvað mér þykir gaman í skólanum að ég er farin að bíða með óþreyju eftir að byrja aftur. Mér gekk mjög vel í báðum fögunum sem ég tók í haust, fékk 9 í báðum og er virkilega sátt við það.

Það vita það nú líklega flestir að aðstæðurnar hafa breyst heilmikið hjá okkur hérna á Krossgötunni síðustu vikur. Undramundur er að hætta sem framkvæmdastjóri Leikhúsmógúlsins og byrjar með vorinu að vinna hjá Latabæ. Hann verður yfir einni af erfiðustu deildunum þar - armbeygjudeildinni Tounge.
Þetta þýðir að hann verður að vinna að heiman fram á sumar, við hjónin verðum semsagt bæði heimavinnandi - hann uppi í armbeygjunum og ég hérna niðri að læra. Það verður örugglega frekar skrítið en mjög notalegt. Það verður alla vega mjög auðvelt að komast saman í Lunch Wink.

Það er því alveg öruggt að við flytjum öll heim næsta sumar, þetta verður bara stutt stopp á Krossgötunni í þetta skiptið. Það fer því hver að verða síðastur að koma í heimsókn, þeir sem hafa áhuga ættu að hafa samband svo við getum passað upp á að það verði ekki tví- og þríbókanir í gestarýmið Wink.

Ég er búin að setja eitthvað af myndum í Janúaralbúm, mest af því eru reyndar myndir sem ég tók á nýjasta leikfangið mitt. Við Undri fengum nefnilega dót í jólagjöf í fyrsta skipti í mörg ár og ég er búin að vera mikið dugleg að leika mér. Það er ólíkt skemmtilegra að taka myndir á alvöru myndavél, hlakka til vorsins, ætla að vera dugleg að smella af myndum héðan, hef heyrt að vorið hérna sé alveg yndislega fallegt og blómlegt. Það mætti reyndar halda að það væri komið vor núna, hitinn fór í 20 gráður í gær og er í um 17 gráðum núna, glampandi sól og fallegt. Ég á reyndar ekki von á að það endist, getur varla verið að veturinn sé svona stuttur.

Hérna til vinstri eru líka myndbönd af börnunum, undir Nýjustu myndböndin.

Knús í kotin ykkar,

Birgitta


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband