28.3.2008 | 18:29
Drukkin í skólanum!
Við fengum símtal frá Ardsley High School í gær.
Það var Frú Aðstoðarskólastjóri sjálf sem tilkynnti okkur að hjá henni sæti Ungfrú Kara Guðmundsdóttir sem væri undir áhrifum áfengis .
Við fengum eðlilega áfall! Og sjokk! Og aftur áfall! Og aðeins meira sjokk !
Gummi rauk af stað - ég þyrfti að eiga svona tilfinningatákn sem væri sambland af áhyggjufullum og foxillum pabba því það var hann svo sannarlega.
Ég beið hérna á meðan og gekk um gólf.
Gummi kom aftur stuttu seinna.
Þegar hann kom á skrifstofuna var búið að mæla í henni blóðþrýstinginn og eitthvað meira og staðfesta það að hún væri nú ekkert drukkin barnið enda heitir áfengið sem Karan okkar var að drekka Egils Maltextract - bætir hressir kætir .
Mamma hennar hafði laumað tveimur dósum á Undramund sem hann ferjaði hingað til Köru, við mikinn fögnuð hennar. Þetta hafði hún með sér í skólann í kókflösku (af því það er svo erfitt að vera með opna dós í skólanum) og drakk á milli tíma.
Eins og flestir vita þá lyktar Malt ekkert ósvipað bjór, lítur út eins og dökkur bjór og hlýtur þá að vera bjór - ekki satt?
(if it walks like a beer, talks like a beer og allt það)
Einhver saklaus skólafélagi hennar sá sig semsagt tilneyddan til að tilkynna það að Kara væri að sulla í áfengi á miðjum skóladegi.
Þetta var Drama dagsins - í boði Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar .
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Elsku stelpan, var hún ekki alveg í rusli? hún hefur auðvitað ekki getað útskýrt fyrir þeim hvað Malt er.
Knús frá ömmu
DB (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 12:06
Nei, hún var nú ekkert svo sjokkeruð greyið, fannst eiginlega bara skrítin öll þessi læti í fólkinu, hún er svo róleg þessi elska . Og eftirá er þetta auðvitað bara frekar fyndið.
Birgitta, 29.3.2008 kl. 15:29
Jedúddamíamín - ég segi nú bara ekki annað! Eins gott að það var ekki búið að hringja á barnaverndarnefnd líka!
Edda (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 15:42
Þetta verður nú aldeilis eitthvað til að segja ömmubörnunum frá í ellinni ;)
Marta (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 23:50
... ég var svona á svipinn, í alvörunni, þegar ég var að lesa þetta... þau hljóta nú að hafa orðið pínu kjánaleg þarna í skólanum...
Sigga Þórðar (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 11:55
... þá meina ég auðvitað Frú Aðstoðarskólastjóri og co, þegar þau komust að hinu rétta...
Sigga Þórðar (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 18:06
Sigga - get nú ekki sagt að þau hafi neitt skammast sín, allt í nafni öryggisins og allt það.
Ekki það, ég yrði bara dauðfegin ef þau myndu hringja í mig EF hún væri drukkin í skólanum .
Birgitta, 1.4.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.