Flugi flýtt vegna veðurs

Ákvað að kíkja á veðurspána fyrir Long Island, athuga hvort við fengjum ekki sól og blíðu og dásemd og dýrð í þriggja daga sumarfríinu okkar.

Ónei, það var sko ekki í boði.
Veðurspáin fyrir akkúrat þessa 3 var bara glötuð. Þrumuveður og rigning ALLAN TÍMANN. Sól og blíða daginn áður og daginn eftir að við ætluðum að halda heim.
Veit fátt leiðinlegra en að kúldrast inni á hótelherbergi í leiðindaveðri Pinch.

Breytti því planinu með det samme.
Við krakkarnir ætlum að fljúga heim með Köru á fimmtudagskvöldið. Undramundur ætlar að skila húsinu okkar hérna og fara með bílinn á bílasöluna og kemur með föstudagsfluginu.

Þó það verði leiðindaveður á Íslandi er mun betra að kúra í ömmu og afa koti en á hótelherbergi á Long Island.

Best að bretta upp ermarnar og henda mér í pakkið.

Knús,
Birgitta og co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með ykkur í þessu ævintýri :) vona að pökkunin og heimferðin gangi vel!

svo bara að halda áfram að blogga heima :)

Kveðja frá klakanum

Anna Barbara frænka (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 11:50

2 identicon

  sendi her med "gangi-ykkur-vel-ad-pakka-klapp-a-bakid"

Edda (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband