11.10.2006 | 22:44
Kannast þú við þetta...???
Þetta lýsir svo ágætlega hvernig dagurinn líður hjá heimavinnandi húsmóður í fjarnámi...
Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur
fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.
Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp :
Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá
eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í
gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað að
henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því
reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með
ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við
bílinn hvort eð er.
Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail
í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki.
Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að
blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt.
Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri
haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók
eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.
Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi
hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa
á uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á
handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.
Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að
leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og
fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna
þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.
Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað
ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!!
Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki
vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki
svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum
og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu.
Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum
snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að
leita mér hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age
Activated Attention Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur
athyglisbrestur".
Þar til næst...
B
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.