Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Að storka örlögunum

Keyrði Austur fyrir fjall um helgina. Sá ótrúlega tölu á skiltinu við bílhræin tvö við vegarkanntinn.
Skrítið að maður hugsi að það sé frábært að það hafi BARA svona og svona margir látist í bílslysi á árinu, það er auðvitað alveg hrikalegt að það hafi einhver látist í bílslysi á árinu, en það er samt gott að það séu ekki fleiri.

Mér finnst einhvern veginn að það megi helst ekki ræða þetta - þá sé maður að storka örlögunum. Ákvað þess vegna að minnast ekki á þetta í sveitasælunni.
Er svo ekki bara fyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins í dag um akkúrat þetta - ussussuss!

Vona að þetta sé bara kjánaleg hjátrú í mér og að talan á skiltinu eigi ekki eftir að breytast.

Þar til næst...

B


Flutningar

Það er sko meira mál en ég hélt að finna sér húsnæði í Amríkunni.
Í fyrsta lagi þarf að finna sér bæ eða borg sem maður getur hugsað sér að búa í og það er hægara sagt en gert.
Var búin að finna borg sem við fyrstu sín virtist vera akkúrat það sem við vildum - húsin fín og flott og á góðu verði (þarna hefði maður strax átt að fatta að eitthvað var ekki í lagi). Þegar hverfið er komið þarf maður að finna út hvaða skólar þjónusta því og við þurfum 3 mismunandi skóla - elementary, middle og high school - svo það er heilmikil research sem fylgir því.
Þessu hverfi fylgdi flottur elementary skóli fyrir sponsið, high skólinn fékk góða dóma en middle skólinn var bara einn fyrir ansi stórt svæði. Enda ganga rúmlega 1400 nemendur í hann. 
Þetta leist mér ekkert á fyrir frumburðinn en ákvað samt að kanna borgina nánar.
Google skilaði mér fréttum um klíkuvandamál og óeirðir og Wikipedia talar um vaxandi vandamál, aukna glæpi - nauðganir, morð og fleira þvílíkt - ekki alveg það sem mann dreymir fyrir fjölskylduna sína.

Þetta er ekki fyrsti bærinn eða borgin sem fór svona - leit vel út í byrjun var svo eins og rotið epli við nánari skoðun. Það lá við að ég  gæfist upp og hætti bara við þetta. 

Ég hélt samt áfram að leita og er búin að finna bæ - eða eiginlega þorp - sem lítur vel út. Lítur vel út online alla vega, spurning hvað verður þegar við förum að skoða næstu helgi.

Meira síðar...

B


Baðherbergisblús

Ég ætlaði að skrifa hérna langa og færslu um hrakfarir okkar í samskiptum og viðskiptum við Bykó en ég nenni því ekki.
Þetta yrði fjögra síðna færsla sem væri svo leiðinleg að það myndi enginn nenna að lesa hana.
Læt bara duga að benda þeim sem þykja vænt um geðheilsuna á að versla EKKI eitt stykki baðherbergi af Bykó, eiginlega mæli ég ekki með því að versla neitt af þeim nema þú getir haldið á því, gengið með það að kassanum, borgað og labbað með það út.

Við byrjuðum á baðherbergisævintýrinu í febrúar.
Því er ekki enn lokið (og Bykó á stóran þátt í því).
Í dag brotnaði spegill númer 3 við ásetningu, eins og spegill númer 1, spegill númer 2 var skorinn vitlaust af speglagerðinni og náði því ekki að brotna við ásetningu.
Rafvirkinn kom og undirbjó ljósaísetningar - og tók rafmagnið af hjónaherberginu í leiðinni.
Það var á miðvikudaginn, hann kemur í fyrramálið og lagar.

Þetta er bara svona smjörþefurinn af því sem hefur gengið á hjá okkur undanfarnar vikur.

Ég er hætt að kippa mér upp við þetta, eiginlega farin að hlæja bara að þessu.
(það er samt ekki frá því að það sé smá móðursýkistónn í hlátrinum).

Þar til næst...

B


Samskiptaleysi

Alveg er það ótrúlegt hvað öll samskipti minnka þegar skólanum lýkur.
Bara fyrir viku síðan dundu á mig tölvupóstar, allir að spjalla á msn, nóg um að vera í fjarkennsluumhverfinu en ég hafði lítinn sem engan tíma til að sinna því.

Núna hef ég nógan tíma en þá dettur ekki einu sinni inn hjá mér email - nema kannski frá Amazon og Icelandair en þau teljast ekki með (þó ég sé farin að lesa þau af mikilli athygli af því ég fæ ekkert annað).
Það eru ótrúlega fáir online, allir eitthvað bissí nema ég.

Humm, ég þarf kannski að fá mér líf..?

Þar til næst...

B


Fréttir af flutningum

Við fengum fréttirnar í gær - Nonimmigrant worker Visa samþykkt fyrir Hellisbúann.
Sem þýðir að við erum að fara á fullt að finna okkur húsnæði í NY fylki, gera húsið okkar hérna söluhæft, pakka niður drasli og dóti, henda drasli og dóti, koma kisu litlu á góðan stað, selja húsgögn og raftæki, kaupa húsgögn og raftæki og endalaust eitthvað meira.

En ekki núna.
Núna er ég lasin.
Hef varla orku til að hugsa um þetta hvað þá meira.
Ætla því bara að skríða aftur í bælið.

Meira seinna...

B


Alvarlegur skortur

á heimilinu... okkur sárvantar hjól.

Eða réttara sagt þá sárvantar frumburðinn hjól. Hjólið hans eyðilagðist um daginn og hann hefur þurft að ganga í skólann undanfarna viku - sem auðvitað gengur bara alls ekki!

Ef einhver á notað hjól að selja okkur, hjól sem passar fyrir 11 ára dreng, þá myndi það auka hamingjustigið á heimilinu margfalt.

Þar til næst...

B


Ohh what a world, what a world

Stjórnin fallin og Evrópsk heimsmynd rammskökk til austurs.

Verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur til með að líta út þegar maður vaknar á morgun. Kannski vaknar maður bara í moldarkofa í þriðja heims ríki?

Þar til næst...

B


Óákveðin

Það er ekkert skrítið að ég sé óákveðin fyrir komandi kosningar. Tók þetta próf hér og útkoman er þessi:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 31.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 18.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 29%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

Efast um að þetta sé marktækur munur.

Ætti kannski að taka prófið aftur eftir 4 daga, þegar ég verð búin í prófunum og hef pláss fyrir eitthvað annað í kollinum á mér en 100 milljón hugtök (ég er ekki að ýkja!).

Þar til næst...

B


Kominn heim

Hellisbúinn kominn heim eftir langa dvöl í útlandinu og fer beint í uppáhaldsiðju sína:

Kubbakall2

Er'ett'ekki notó?

Þar til næst...

B


Ísland best í heimi!

Þær fréttir bárust í vikunni frá Kína að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið koparvíra.
Kínversk stjórnvöld segja að þetta sýni svo að ekki verð
i
um villst að Kínverjar hafi verið búnir að finna upp símann fyrir 1.000 árum.

Daginn eftir bárust þær fréttir frá Þýskalandi að fronleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið ljósleiðara.
Stjórnvöld þar í landi segja og Evrópusamba
n
dið líka að þetta sýni að þjóðir meginlandsins hafi fundið upp stafrænar símstöðvar fyrir 1000 árum

Í gær bárust þær fréttir frá íslandi að fo
r
nleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m ofan í jörðina og fundið - ekki neitt.  
Íslensk stjórnvöld fag
na þessu mjög og segja hafið yfir allan vafa að það hafi verið íslenskir landnámsmenn sem fundu upp þráðlaust kerfi.

 

Þar til næst...

B


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband