Færsluflokkur: Bloggar
19.10.2006 | 23:06
#%$ lús
Hvernig í ósköpunum stendur á því að Maðurinn (já, þessi með stóra emminu) er ekki búinn að útrýma einhverju jafn litlu, ómerkilegu og tíkarlegu og lús?
Ha?
Ég bara spyr!
Er frekar mikið pirruð núna. Held ég hafi fundið lúsabit í hnakkanum á minnsta afkvæminu.
Fórum í gegnum þetta í fyrra og mér þótti það bara ágætis skammtur - fyrir lífstíð! Er ekki í skapi til að gera þetta aftur - aldrei!
Nú finnst mé rað að einhverjir vísindakallar útí heimi taki höndum saman og finni lausn á þessu. Hvað ætli margar vinnustundir tapist árlega vegna lúsafaraldurs? Hefur einhver reiknað það saman?
Þegar konur (ekki reyna að ljúga að mér að einhver karlmaður taki þetta að sér!) þurfa að standa á haus í nokkra daga við að sótthreinsa heilt heimili, kemba öllum fjölskyldumeðlimum í 2 vikur og þvo liðinu með einhverjum óþverra billjón sinnum án þess að það hafi nokkur áhrif, setja það sem kemst ekki í þvottinn í frysti og svo ganga frá þessu öllu loksins þegar bévítans óværan er loksins dauð. Varla hægt að komast yfir þetta OG mæta í vinnuna!
Komst að því eftir langa mæðu í fyrra að það eina sem blívar á þessi bansettu kvikindi er ólífuolía.
jább, ólífuolía.
Makar bara nógu miklu af henni í hárið á sjúklingnum og vefur handklæði eða einhverju utan um hárið og lætur greyið sofa með þetta yfir nótt.
Ekki séns að nokkur skæruliðalús lifi þetta af, ná engu taki á neinu og drukkna í olíu - muhahaha!
Svo komst ég líka að því að maður þarf bara að klippa nitina úr, það er ef maður ætlar ekki að standa í þessu fram á sumar.
Þetta var það eina sem virkaði hjá okkur - sjampó og önnur rándýr efni í apótekinu gerðu akkúrat ekkert fyrir okkur.
Enda eru þær að verða ónæmar fyrir þessu öllu saman.
Segi það nú samt, ef þetta verður viðvarandi vandamál í vetur (ofstuðlun!) þá mun ég alvarlega íhuga heimakennslu fyrir börnin!
Þar til næst...
B
Ps. Sjáiði bara hvað hún er sæt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2006 | 08:22
Kartöflur og Kannabis
Greinilegt að margt vex í Þykkvabænum..
"Húseigandi hefur viðurkennt að eiga allar plönturnar og áhöldin og er talið hugsanlegt að eitthvað hafi verið ætlað til sölu".
Varla hefur maðurinn ætlað að neyta þessa alls sjálfur? Spurning um að koma niður á jörðina einhvern tíma á næstu öld...
Þar til næst...
B
![]() |
50 kannabisplöntur fundust við húsleit í Þykkvabæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.10.2006 | 09:26
Hamingjan í handtösku
Sko! Hún veit þetta líka!
Þar til næst...
B
![]() |
Jessica Alba segir hamingjuna fólgna í hinni fullkomnu handtösku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2006 | 14:06
Framtíðarfólk
Verður þetta ekki löngu orðið þannig að maður pantar bara eiginleika afkvæmis síns?
"Láttu mig hafa einn dreng, með dökkt hár og brún augu, hávaxinn, grannan. Hann á að vera með góða tónlistar- og stærðfræðigreind. Taktu endilega út fyrir mig, þunglyndi, krabbamein og aðra slíka kvilla ef þú rekst á þá."
"Og hvenær verður hann svo tilbúinn? Sendið þið eða þarf ég að sækja?"
Eða eitthvað í þessum dúr...
Og þá held ég að enginn panti sér barn með alla neikvæðu eiginleika mannkyns - eða hvað?
Þar til næst...
B
![]() |
Greindir risar og heimskir púkar eftir 100.000 ár? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.10.2006 | 12:39
07.07.07 - engin afsökun!
Ég veit alveg upp á hár af hverju þetta er svona vinsæll dagur fyrir brúðkaup!
Þetta er sko bara gert til þess að það séu meiri líkur á því að eiginmaðurinn tilvonandi muni eftir brúðkaupsafmælum framtíðarinnar.
Það er frekar glatað að viðurkenna að þú munir ekki hvað þið eigið margra ára brúðkaupsafmæli ef þú giftir þig 07.07.07.
Svo ég segi bara Góðar!! (tilvonandi brúðir þ.e.).
Þar til næst...
B
![]() |
07.07.07 langvinsælasti giftingardagurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2006 | 10:42
Fornar syndir..
Mér þykir þetta eiginlega bara vera frekar skondið.
Kannski er maður bara orðinn svona samdauna spillingunni hérna á Íslandi en það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las þessa frétt var að það væri líklega vandfundinn Íslendingur sem hefur ALDREI brotið lögin.
Þá á ég við akkúrat svona brot eins og ráðherrarnir í Svíþjóð hafa gerst sekir um.
Rétt'upp hend sem hefur aldrei farið yfir á rauðu, aldrei sleppt því að borga afnotagjöldin í einhverja mánuði, aldrei svikist undan skatti (fengið greitt svart t.d.), aldrei keyrt yfir löglegum hámarkshraða o.s.frv.
Svo fór ég að spá hvað þetta er í raun hrikalegt ástand ef maður er farinn að líta lögin þessum augum. Lög eru lög, sama hversu ósanngjörn manni þykir þau (sbr. afnotagjöldin) og þeim ber að framfylgja.
Svo eru reyndar til lög sem eru reyndar alveg útí hróa eins og Galdrameistarinn kemur inná, spurning hvort það megi ekki fara að taka til í lögunum svo það verði auðveldara að fylgja þeim?
Þar til næst...
B
![]() |
Annar ráðherra segir af sér í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2006 | 15:50
Lærdómur
Ég er búin að vera hrikalega dugleg að læra frá því skólinn byrjaði í haust (eða sumar eiginlega). Svo í síðustu viku fékk ég hálfgert ógeð og er ekkert búin að læra í nokkra daga - ekki staf!
Samviskubitið alltaf að reyna að banka uppá en letibykkjan hleypir því ekki að.
Ég hangi því bara og geri ekki neitt.
Og það er ekki eins og ég noti tímann í að þrífa, þvo eða einhver önnur verkefni sem bíða. Neibb, bara hangi á netinu, les í bók eða bara stari útí loftið og geri ekki neitt.
Ætli þetta sé skammdegið að fara svona með mig?
Get samt ekki sagt að ég sé neitt leið, er fljúgandi kát og glöð. Er bara löt.
Kannski átti ég þetta bara inni?
Þegar ég segist hafa verið hrikalega dugleg þá meina ég hrikalega dugleg! Erum að tala um lærdóm í 8-10 tíma á dag. Svo kannski var þetta bara orðið ágætt í bili og heilinn hefur sett á pásu svo ég læri bara hreinlega ekki yfir mig .
Já, held það bara.
Líst vel á þessa (afsökun) ástæðu.
þar til næst...
B
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2006 | 16:06
Væri slæmt
Ef loftslagið á Bessastöðum breyttist... Er ekki annars fínt loftslag þar?
Þar til næst...
B
![]() |
Fundað á Bessastöðum um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2006 | 08:29
Neysla og mótmæli
Ég fæ alveg fjaðrir við tilhugsunina um troðninginn og kraðakið. Alveg innilokunarkennd - næstum.
Hvernig væri að fá þetta fólk til að mótmæla einhverju í leiðinni? Ég kem inn á það hérna fyrir neðan hvað Íslendingar eru lélegir mótmælendur, nennir enginn að mæta og mótmæla, en þegar ný verslun opnar eru allir komnir til að athuga hvort þeir geti nú ekki keypt sér eitthvað.
Kannski ættu þeir sem standa fyrir mótmælum að skipuleggja útsölu í leiðinni: "Mætum öll og mótmælum stríðinu í Írak - fótanuddtæki og Orbitrek á hálfvirði fyrir fyrstu 1000 sem mæta".
Er alveg pottþétt á að það helmingi fleiri myndu mæta.
Þar til næst...
B
he
![]() |
Þúsundir gesta komu í nýja IKEA-búð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.10.2006 | 16:46
Ojbarasta! en fúlt :(
Fékk þetta af aðdáendavef Magna:
Due to issues that have nothing to do with music and everything to do with money Supernovas managers have decided not to include the House-band in the upcoming tour - That of course means that I´m not going either. Instead - Juke Cartel - Toby´s band will be opening the show.
This is of course a huge blow for me since I was so eagerly waiting to go with my boys on tour but the plan is still to get them over here for my birthday on desember first...
Love
Sad Magni
Örugglega fullt af fólki sem ætlaði á tónleikana bara til að sjá Magna og Húsbandið. Skjáði líka annars staðar að Storm verður ekki heldur svo þetta þetta er orðið frekar þunnt fyrir þá sem eru ekki hrifnir af Lukas. Alla vega langar mig ekki lengur á þessa tónleika - eins og það kitlaði að skella sér bara til útlandsins og berja liðið augum.
Ég mun sko bara láta mér íslensku tónleikana með Magna og Húsbandinu nægja. Vona bara að Magni díli við þá og túri með þeim, held að þeir myndu gera það stórgott í USAnu.
Jæja, svona er lífið. Í þessum bransa (sem og flestum öðrum) gengur allt útá peninga, einhver hlýtur að hafa talið þetta gróðavænlegri leið.
Þar til næst...
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)