18.1.2007 | 18:50
Stjörnugjöf..
Hvað er málið með þessa stjörnugjöf við hverja bloggfærslu?
Eitthvað til að bæta enn á samkeppnina hérna á Moggabloggi?
Er ekki nóg að menn (sjaldnast konur) keppist um fjölda heimsókna, athugasemda og bloggvina - á nú að bæta við keppni um flest 5 stjörnu blogg?
Uss fuss, ég vil helst losna við þetta.
Þar til næst...
B - með stjörnustæla
Athugasemdir
Hver gefur hverjum stjörnur? Eða gefur hver og einn hverjum og einum stjörnu eða bara sjálfum sér?
Marta (IP-tala skráð) 18.1.2007 kl. 19:53
Veistu, ég held þetta sé bara skraut, þetta er svona líka hjá mér. Ég tók líka eftir að þeir hafa verið að snurfusa bloggið í dag.
Birna M, 18.1.2007 kl. 20:45
stjörnulíf....
Ólafur fannberg, 18.1.2007 kl. 22:35
Það geta allir gefið öllum stjörnur, ef ég er t.d. yfir mig ánægð með eigin skrif get ég gefið sjálfri mér 5 stjörnur fyrir...
Finn ekki leið til að taka þetta út.
Birgitta, 19.1.2007 kl. 09:38
Humm, einhver hefur bænheyrt mig og tekið stjörnurnar mínar út. Sé þetta samt enn inni hjá öðrum bloggurum. Frábært að einhver hjá Moggabloggi hafi tíma til að "hlusta" á tuðið í einstökum bloggverjum .
B - mere mortal
Birgitta, 19.1.2007 kl. 11:54
Ég ætla ekki að hafa þetta inni fyrst um sinn, það rugluðust stilingar hjá mér í þessum lagfæringum þeirra en ég held ég sé búin að laga.
Birna M, 19.1.2007 kl. 20:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.