25.4.2007 | 18:43
Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?
Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.
Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.
Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.
Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.
Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara .
Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. .
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!
Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?
Þar til næst...
B - alvöru kona
Athugasemdir
Hahaha brilliant! Ekki minnsti vafi á því hvort ég er!!
Heiða B. Heiðars, 25.4.2007 kl. 18:46
Vá þvílíkt ritúal að setja inn athugasemd - ég er búin að gleyma hvað ég ætlaði að segja
Marta alvörukona (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 08:53
Hehe þarft að þjálfa betur skammtímaminnið kona.
En hefur ritualið eitthvað breyst? Er það ekki bara jafnflókið og skemmtilegt og vanalega?
Annars leysirðu þetta með því að stofna þér bloggsíðu á mbl, þá er þetta ekkert bögg...
B
Birgitta, 26.4.2007 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.