21.8.2006 | 17:50
Aumingjans, greyið Clooneymann
Bara verið að skilja hann útundan!?
Var ekki búið að kenna Brad og Matt að það er ljótt að skilja útundan? Á ég að hugga geyið? Kyss'á báttið?
Annars kannast maður nú alveg við þetta úr saumó, þær sem eru fyrstar og síðastar í barneignum verða oft hálfútundan í samræðunum.
Þær sem eru fyrstar eru útundan af því hinar skilja ekkert (og/eða hafa takmarkaðan áhuga) og þær sem eru síðastar af því að hinar eru búnar með bleyju/tanntöku/brjóstagjafapakkann.
Clooneymann ætti því að drífa sig í að koma með eitt, bara svo hann lendi ekki líka í seinni hópnum.
Þar til næst...
B
George Clooney barnlaus og útundan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.