Uggandi um Magna :(

Úff mér líst nú ekki alltof vel á útlitið fyrir Magna Okkar eftir að hafa lesið skemmarana (spoilerana) á Rockband.com - ath! EKKI smella á þennan hlekk ef þú vilt ekki vita hvernig flutningurinn gekk!

Nú er bara að kjósa eins og við eigum lífið að leysa! Ef Magni endar í 3 neðstu þessa vikuna er hætt við að hann fari heim.

Eina sem mér sýnist að gæti mögulega farið á undan honum er Dilana og maður veit ekki hvort þeir tími að láta dramadrottninguna fara strax því stælarnir í henni trekkja auðvitað að áhorfendur.

Þeir sem vilja kíkja á raunveruleikaþáttinn geta séð hann hérna.

Það lítur út fyrir aðra vökunótt á morgun... Og þið sem kusuð ekki síðast: Ykkur munar EKKERT um eina nótt Glottandi.

Þar til næst...

B - farin að hlakka til þegar Rockstar Supernova er búið og ég get fengið lífið mitt aftur!


mbl.is Magni syngur frumsamið lag og verður annar í röðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna M

Fannst það sem ég las ekki það slæmt, hann á enn góða möguleika. Og við spillum þeim ekki því lofa ég.

Birna M, 4.9.2006 kl. 20:03

2 Smámynd: Birgitta

Mikið er ég ánægð að heyra það Birna M. Kannski er ég bara svona svartsýn í dag ;).

B

Birgitta, 4.9.2006 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband