Ljúfa líf

Mikið hrikalega er lífið ljúft þessa dagana.

Ligg í eðalbókmenntum, borða sushi í morgunmat (alveg satt!), konfektmola í eftirmat og hef það bara ofboðslega gott.

Ég "neyddist" til að lesa nokkrar íslenskar bækur útaf náminu mínu og mikið er ég glöð og þakklát fyrir það í dag. Ég er búin að kynnast nokkrum frábærum rithöfundum sem hafa auðgað andann minn svo um munar Wink.
Af þeim stendur Jón Kalman Stefánsson langt uppúr, þvílíkur unaður að lesa bækurnar hans. Nú er einmitt Himnaríki og helvíti á náttborðinu og ég er að hugsa um að spara mér hana aðeins. Tími varla að byrja á henni strax því þá klára ég hana örugglega í dag/kvöld og þarf að bíða lengi eftir næstu bók.
Þarf líka að tæma hugann aðeins eftir að hafa klára Yosoy í gærkvöldi, ekkert smá sem hún togar í mig. Það er svona bók sem maður þarf að melta í nokkra daga og mun örugglega poppa upp í hugann öðru hvoru næstu vikurnar.
Fínt að lesa þá bara ammrísk slúðurblöð - þau galtæma hugann á  nó tæm.

Þar til næst...

B


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú líst mér á það, ertu farin að borða sushi
Hlakka til að fara með þér út að borða næst...

Marta (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband