Bitin af blogginu mínu ..

Haldiði að færslur mínar hér á blogginu séu ekki bara farnar að bíta mig í botnin!
Það er greinilegt að fleiri sem þekkja mig eru að lesa hérna en ég gerði mér grein fyrir og ég er farin að fá ýmislegt sem ég læt flakka hérna í hausinn frá ótrúlegustu aðilum - og jafnvel eftir ótrúlegum krókaleiðum.

Veit eiginlega ekki hvort ég hef gaman af því eða hvort þetta fari í taugarnar á mér. Verst að það skuli vera til fólk sem tekur því háalvarlega sem ég rita hérna.

Maður verður samt greinilega að passa hvað maður lætur frá sér fara hérna, spurning um að fá óháðan aðila til þess að ritskoða það sem ég sendi frá mér.

Þar til næst...

B


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmm, mér finnst bara skemmtilegt að lesa bloggið þitt, hér eru aldrei nein leiðindi. Kem hingað daglega og hef alltaf gaman að. Að sjálfsögðu dettur mér ekki annað í hug en að taka þig háalvarlega enda hefurðu alltaf verið mjög alvörugefin ;o)

Edda (IP-tala skráð) 23.10.2006 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband