13.11.2006 | 18:16
Tjútti tjútti djamm djamm
Mig langar:
Að fara í Singstarpartý með góðum félögum - Marta og Gunnþórunn væru þar ofarlega á blaði.
Að fara á dansiball með Kynsystrunum.
Að fara í rauðvínssaumó með hinum klúbbnum (vantar alveg nafn á hann!) og að allar mæti, líka þær sem eru í öðrum löndum.
Að fara í eldhúspartý til múttu, eitt af þeim sem endar inni í stofu og allar gömlu grammófónplöturnar á víð og dreif um öll gólf og við dönsum saman í nostalgíuvímu mæðgurnar.
Að fá góða gesti í mat og spila Risk, Scrabble eða Battle of the Sexes.
Að fara í kellingaferð í sumarbústað - kojufyllerí, náttfatapartý og trúnó.
Að fara út að borða með góðu fólki og sitja á spjalli fram á nótt.
Að hitta Rítu og Hildi Rós á kaffihúsi/bar (mætti alveg vera í Ástralíu) og spjalla út í eitt.
Að fara í óvissuferð með gömlu vinnufélögunum.
Og ekkert endilega í þessari röð.
Þar til næst...
B
Athugasemdir
Algjör draumur:)
Birna M, 13.11.2006 kl. 23:42
já kattardraumur
Ólafur fannberg, 14.11.2006 kl. 08:05
Góður
Marta (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 12:29
..fyrir utan að ég mundi halda að við Gunnþórunn værum EFSTAR á blaði..
Marta.. aftur (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 12:30
(uss, ekki segja neinum Marta en ég er svo dipló að ég vildi ekki móðga neinn og setta þetta því svona upp).
Birgitta, 14.11.2006 kl. 13:46
Marta: Svo finnst mér að þú hefðir bara átt að bjóða mér í Singstarpartý í staðinn fyrir að móðgast .
B
Birgitta, 14.11.2006 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.