Tjútti tjútti djamm djamm

Mig langar:

Að fara í Singstarpartý með góðum félögum - Marta og Gunnþórunn væru þar ofarlega á blaði.
Að fara á dansiball með Kynsystrunum.
Að fara í rauðvínssaumó með hinum klúbbnum (vantar alveg nafn á hann!) og að allar mæti, líka þær sem eru í öðrum löndum.
Að fara í eldhúspartý til múttu, eitt af þeim sem endar inni í stofu og allar gömlu grammófónplöturnar á víð og dreif um öll gólf og við dönsum saman í nostalgíuvímu mæðgurnar.
Að fá góða gesti í mat og spila Risk, Scrabble eða Battle of the Sexes.
Að fara í kellingaferð í sumarbústað - kojufyllerí, náttfatapartý og trúnó.
Að fara út að borða með góðu fólki og sitja á spjalli fram á nótt.
Að hitta Rítu og Hildi Rós á kaffihúsi/bar (mætti alveg vera í Ástralíu) og spjalla út í eitt.
Að fara í óvissuferð með gömlu vinnufélögunum.

Og ekkert endilega í þessari röð.

Þar til næst...

B


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna M

Algjör draumur:)

Birna M, 13.11.2006 kl. 23:42

2 Smámynd: Ólafur fannberg

já kattardraumur

Ólafur fannberg, 14.11.2006 kl. 08:05

3 identicon

Góður

Marta (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 12:29

4 identicon

..fyrir utan að ég mundi halda að við Gunnþórunn værum EFSTAR á blaði..

Marta.. aftur (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 12:30

5 Smámynd: Birgitta

(uss, ekki segja neinum Marta en ég er svo dipló að ég vildi ekki móðga neinn og setta þetta því svona upp).

Birgitta, 14.11.2006 kl. 13:46

6 Smámynd: Birgitta

Marta: Svo finnst mér að þú hefðir bara átt að bjóða mér í Singstarpartý í staðinn fyrir að móðgast .
B

Birgitta, 14.11.2006 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband