29.8.2006 | 19:29
Virkar ekki... Vantar aðstoð!!
Virkar þetta kannski ekki hjá neinum?
Signaði mig út, slökkti á msn, kveikti aftur og signaði mig aftur inn en flipinn með stjörnunni birtist ekki.
Væri svo til í að fá þetta í gagnið - getur einhver hjálpað mér???
B
![]() |
Hægt að kjósa í Rockstar Supernova á MSN |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.8.2006 | 15:06
Húrra fyrir Vodafone
Hlaut að vera! Mikið er ég nú glöð yfir þessu...
Vil svo benda öllum á póstinn hér að neðan - endilega prófa að kjósa aftur klukkan 11 í fyrramálið.
Reyndar bara á netinu - ekki í sms.
B
![]() |
Og Vodafone lækkar verð á sms-skilaboðum í símakosningu Rockstar Supernova |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2006 | 14:39
Áríðandi!!! Vegna Magna og Rockstar
Hjó eftir commenti á Rockband - þar er einn frá Ástralíu og talar um að þeir fái ekki að sjá þáttinn fyrr en 10 tímum eftir USA og geta þá kosið í 2,5 tíma eftir það. Málið er að þeir geta LÍKA kosið eftir beinu útsendinguna í USA - semsagt geta kosið tvisvar!
Þetta gæti þýtt að við hér á Íslandi gætum LÍKA kosið AFTUR 10 - 11 tímum eftir að þátturinn er sýndur hér eða um klukkan 11 í fyrramálið.
Ekki spurning að það er þess virði að prófa!!!
Láið þetta endilega ganga á alla þá sem geta komist í tölvu klukkan 11 í fyrramálið!
Þar til næst...
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2006 | 15:26
Ég segi nú aftur - hvað með Vodafone???
Ætla þeir ekki að "step up" og lækka sitt gjald?
Ég skora hér með á þá að lækka!!!
Ég vil líka benda fólki á að í umgangspóstinum er talað um að kosningin sé milli 3 og 7 aðfararnótt miðvikudags en það er því miður ekki rétt - hún er milli 2 og 6.
Þannig að allir þeir sem ætluðu að vakna "aðeins fyrr" en vanalega verða annað hvort að vaka lengur eða vakna enn fyrr! Og ef þú vilt sjá Magna áfram á Rockstar þá ÞARFTU að gera annað hvort .
Fyrir þá sem eru orðnir eða að verða fíklar eins og ég og vilja vita hvernig flutningurinn gekk á I alone kíkið þá á síðuna hennar Pálínu - vara samt við að þetta eru skemmarar (spoilerar) þannig að ef þú vilt ekkert vita þá er betra að bíða bara til morguns. Þátturinn var nefnilega tekinn upp í gær og Pálína er með comment frá nokkrum sem voru viðstaddir upptökurnar...
Þar til næst...
B
![]() |
Magni flytur lagið I alone" annað kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2006 | 18:06
Rockstar - spáð í tölur
Fékk þessa fínu mynd hjá henni Pálínu. Þarna sést nokkuð vel hvernig trendið er með brottrekstur úr keppninni.
Þeir sem eru að lenda í botn 3 sætunum fá ekki að gera það oft áður en þeir eru sendir heim. Sem þýðir að Magni á ekki mikla möguleika ef hann lendir í neðstu 3 sætunum á þriðjudaginn. Það væri fræðilegur að Ryan eða Toby yrðu frekar sendir heim ef þeir væru með Magna í B3 en ég tel það mjög hæpið þar sem þetta væri í þriðja skiptið Í RÖÐ sem Magni yrði neðstur.
Það er því svooooo mikilvægt að allir - þá meina ég ALLIR - sem mögulega geta KJÓSI aðfararnótt miðvikudagsins.
Þar til næst...
B
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2006 | 09:43
Veit þetta einhver?
Ég hef ekki hugmynd... Móeiður Júníusdóttir? Nei.... varla...
Þið megið alveg segja mér ef þið hafið einhverja hugmynmd - eða bara giska - því ég er svo hrikalega forvitin og þykir óþægilegt að fatta ekki svona hluti STRAX!
Þar til næst...
B
![]() |
Hver er gestasöngkona Stuðmanna? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.8.2006 | 15:32
Hvað með Vodafone???
Það væri nú flott ef þeir gerðu slíkt hið sama.
Er ekki annars örugglega hægt að kjósa úr Vodafone síma?
Ég er að stefna á að fórna klukkutíma svefni, vakna klukkan 6 og kjósa kallinn . Maður getur varla annað eftir svona áskorun:
Magna í úrslit 13. sep.
Sæl verið þið.
Málið er að nú er strákurinn "okkar" búin að vera 2 vikur í röð í einu af 3 neðstu sætunum þrátt fyrir frábæra frammistöðu, og það eru afar miklar líkur á því að verði hann þar 3ju vikuna sé þetta búið hjá honum. Við viljum öll hjálpa honum að komast lengra, helst í úrslitaþáttinn 13. sept.
Til að minnka líkurnar á því að hann verði sendur heim í næstu viku, verða allir þeir sem finnst "alveg frábært hvað honum gengur vel" en hafa aldrei gefið honum atkvæði sitt, og með því hjálpað honum, að taka á sig rögg og kjósa hann.
Atkvæðagreiðslan fer fram aðfaranótt miðvikudaga á milli klukkan 03 - 07 um morguninn. Næst verður kosið aðfaranótt 30. ágúst .
Nú er ekki hægt að búast við að fólk almennt vaki alla nóttina til að kjósa hann, en þeir sem á annaðborð vakna um 7 leitið til að fara í vinnu eða skóla, gætu, án þess að leggja mikið á sig, vaknað hálftíma jafnvel klukkutíma fyrr sest við tölvuna sína, á tæknilandinu Íslandi eru allflestir með tölvu og nettengingu, og kosið á http://rockstar.msn.com/ þar er hægt að kjósa eins oft og maður hefur úthald til og kostar ekki neitt.
Sérðu í anda íþróttaáhugamenn, sem hefðu tækifæri til að hjálpa landsliðinu í handbolta t.d. sleppa þvílíku tækifæri til að hjálpa þeim áleiðis !!!!!!!!!
Nú erum við Íslendingar vön að styðja heilshugar við bakið á okkar fólki sem er að gera það gott á alþjóðavettvangi - svo gott fólk - brettið upp ermar og hjálpið Magna til að komast í úrslitaþáttinn , nú ef það tekst ekki getum við ekki sagt að við höfum ekki reynt !!!!!!!!!!!!
Með baráttukveðjum
Magna aðdáandi
Skorá á ykkur öll...
B
![]() |
SMS-gjald vegna kosningar í Rock Star Supernova lækkað í 19 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2006 | 11:27
"Flísaðist úr annarri tönn leikkonunnar."
Er hún bara með tvær tennur greyið?
B
![]() |
Alba braut úr sér tönn í kynlífsatriði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)