Mig hrjáir

Blogglegt andleysi eða andlegt bloggleysi.

Kannski að handboltinn sogi frá mér alla tjáningarþörf?
Veit að ég fæ útrás fyrir ýmiss tjáningarform yfir leikjunum. Þetta eru einu skiptin sem ég öskra, garga, græt og hlæ án þess að það skipti mig nokkru máli hvað öðrum gæti þótt um það.
Nema kannski þegar dóttirin laumaði að mömmunni að hún væri næstum því hrædd við hana.
Þá reyndi ég að hemja mig.
Í 40 sek.
Þá var skorað og ég missti stjórnina. Og saknaði hennar ekkert.
Knúsaði sponsið bara vel og lengi eftir leikinn og svei mér ef hún var ekki bara komin í ham þarna undir lokin.

Áfram Ísland!

B


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

handboltinn tekur kraft

Ólafur fannberg, 27.1.2007 kl. 22:40

2 identicon

...ég er greinileg að missa af einhverju

Marrrrrrtröð (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 02:59

3 identicon

...ég er greinilega að missa af einhverju

Marta (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 03:00

4 Smámynd: Birna M

Já Gummi gott að þú hélst í þér, annars hefði farið illa

Birna M, 28.1.2007 kl. 12:24

5 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Er þett nokkuð blogglet? Ertu ekki bara einfaldlega upptekin við annað Birgitta mín ;) ?

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 28.1.2007 kl. 18:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband