9.6.2008 | 14:50
Skipulagsleysi
Jæja, þá er maður kominn í sama pakkann og fyrir 11 mánuðum síðan - að pakka niður heilli búslóð . Get ekki sagt að það sé neitt skemmtilegra 2008 en það var 2007. Eiginlega bara leiðinlegra.
Nú þarf ég að pakka með það í huga að við þurfum að hafa eitthvað af dótinu okkar uppivið þennan mánuð sem við erum á flandri á Íslandi, áður en við fáum búslóðina okkar í hendurnar. Tekur nefnilega heilar 5 vikur að sigla henni yfir hafið. Við erum líka með aðeins meira en tonnið sem við fluttum með okkur út - í tonninu voru akkúrat engin húsgögn .
Við þurfum því að vera með allt sem þarf í útilegur, sumarbústaðaferðir, sumarbúðaferðir, sundferðir og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu. Heilinn er nefnilega ennþá að komast í gang eftir afmælishelgina ógurlegu sem er líklega ástæðan fyrir því hvað ég er hrikalega óskipulögð.
Pökkun dagsins hefur farið þannig fram að ég tek kassa og byrja að pakka í hann t.d. bókum. Sé svo spilaskápinn og tek annan kassa og byrja að henda í hann spilum. Man þá eftir bókunum í herbergjum barnanna, tek annan kassa og ræðst á bókaskápana þeirra. Finn spil innan um bækur barnanna og skutla þeim í spilakassann niðri. Heyri þá að þurrkarinn er búinn, tek úr honum og brýt saman rúmföt. Ákveð að það sé óþarfi að vera með öll þessi rúmföt í gangi og tek kassa og byrja að pakka niður rúmfötum. Þau fylla bara hálfan stóran kassa svo það er fínt að henda nokkrum handklæðum ofan í hann líka.
Ég er semsagt ekki búin að KLÁRA neitt. Bara BYRJA Á.
Hversu lengi ætli ég geti BYRJAÐ Á þar til ég er búin að KLÁRA?
Þar til næst...
B
Athugasemdir
Mjööööööööööög löngum, trúðu mér. Ég get eytt mörgum dögum í að byrja á hlutum án þess að klára þá - samt er ég ekki að flytja.
Mundu svo að henda ónýtum nærbuxum, tuskum og sængurfötun frekar en að flytja það á milli heimsálfa, það er mitt flutningsráð til þín. (Segi ég sem hef bara flutt á milli landshluta)
Martaq (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 19:53
...já, gleymdi að spyrja, hvernig hefur Hemúllinn það?
Marta (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 01:06
Ísskápsseglarnir fá samt að koma með okkur heim aftur .
Held að hemúllinn hafi bara drukknað í afmælisstússi - lagstur í dvala bara. Held líka að hemúlum líði ekki vel í 38°+.
Birgitta, 10.6.2008 kl. 01:17
Maður dettur út í nokkra daga og þá eruð þið tvær farnar að tala dulmál! Hrumpf! Hver er hemúllinn?
Ég er búin að pakka í 5-6 kassa. Ég var hins vegar greinilega ekki með meðvitund þegar ég gerði það því ég man ekkert hvað er í hverjum. Sumir eru 33 g en aðrir 78 kg. Svo ég þarf að gera þetta alllllt aftur. Vinsamlega forwarda svo öll pökkunar- og flutningsráð á undirritaða.
Edda Björk Andradóttir, 15.6.2008 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.