Meira af snyrtistofum

Það er eins og ég sé með ammrískar snyrtistofur á heilanum..

Missti andlitið um daginn þegar ég þurfti að reka nefið eina slíka og sá þar sitja eina svona ca 6 ára með fingurna útí loftið meðan verið var að snyrta fæturna á henni. Stuttu seinna kom kona askvaðandi með eina ca 8 ára í eftirdragi og vildi mani/pedi - fyrir þær báðar!

Toppnum (eða botninum?) var svo náð þegar ein mamman kom útúr bakherbergi með 3 skottur í eftirdragi.
Sú yngsta var varla meira en 4ra ára. Hún var með sitthvern lit af naglalakki á hverri nögl.
Næsta var um 6-7 ára, rosalega flott með skærbleikar neglur í flip-floppunum sínum.
Sú þriðja hefur nú örugglega verið komin langt með að fylla fyrsta áratuginn - enda var hún laaang 'flottust'. Neglurnar hennar voru eldrauðar - á fingrum og tám - og hún hafði greinilega gert þetta oft áður. Á leiðinni út leit hún í spegil og snarstansaði.
'Mamma, augabrúnirnar á mér eru mikið betri en síðast, sérðu!'

Þar til næst...

B


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oh my god...hvernig væri nú að leyfa börnunum að vera börn??

Öllu má nú ofgera verð ég að segja!!

Þóra (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 18:45

2 identicon

Úff! En manstu þegar við vorum að leita að bikiníum fyrir ED? Loksins fundum við bikiní sem var ekki bara pjatla fyrir brjóstin, en þegar það var komið upp í stærð 10 breyttist toppurinn í brjóstapjötlu MEÐ FYLLINGU!!!
Bara eins gott að þið flytjið heim áður en sú stutta fer að heimta vax á leggina...

Marta (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 18:57

3 Smámynd: Birgitta

Mér finnst þetta bara hrikalega sorglegt. Vona bara að hún Eva mín sé ekki 'menguð' af þessu öllu saman og haldi áfram að verða litla barnið mitt í nokkur ár .
Marta - mér tókst að finna bikiní í Gap sem leit ekki út eins og Victorias Secret Very Sexy bikiní! Ég varð eiginlega bara hissa!

Birgitta, 8.6.2008 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband