Færsluflokkur: Bloggar
9.2.2007 | 10:46
Samtal
Ég: Hellisbúi, hefurðu séð svörtu sokkabuxurnar mínar einhvers staðar?
Hellisbúinn: Æji, ég er í þeim.
Ég: Hvað meinarðu? Ég þarf að nota þær..
Hellisbúinn: En það er lykkjufall á mínum..
Ég: Só!? Kauptu bara þínar eigin sokkabuxur..
Hellisbúinn: En ég er að fara á mikilvægan fund með KPMG, ég get ekki farið sokkabuxnalaus eða í sokkabuxum með lykkjufalli. Geturðu ekki bara verið í buxum?
Neibb, sé þetta ekki alveg fyrír mér...
Þar til næst...
B - enn að spá í karlmenn í sokkabuxum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2007 | 18:44
Þvílíkur óbjóður
Þetta er væntanlega gert fyrir metrómanninn, það hlýtur bara að vera.
Er það ekki metróinn sem rakar eða vaxar sig hátt og lágt?
Eða eru það bara hnakkar?
Verð að viðurkenna að ég er ekki alveg inn í þessum málum...
Veit bara að það er frekar subbulegt að sjá loðna leggi í næloni.
Þannig að þessir menn hljóta að eiga að raka/vaxa á sér leggina.
Eins og margir þeirra raka/vaxa bringuna og bakið.
Veit fátt hallærislegra en karlmann með brodda á bringu/baki - eða bara nokkurs staðar ef út í það er farið, nema auðvitað í vöngunum.
Finnst það bara akkúrat ekkert karlmannlegt.
Eiginlega bara frekar kvenlegt.
Er ég kannski bara orðin gömul og úrelt???
Eða bara svona rosalega föst í staðalmyndum kynjanna?
Er það þetta sem jafnréttið snýst um?
Þar til næst...
B - forpokuð og ómóðins
![]() |
Sokkabuxur fyrir karlmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.2.2007 | 12:29
Náttúrufegurð
Fórum við rætur Snæfellsjökuls um síðustu helgi.
Skíðuðum aðeins og lékum okkur í snjónum.
Gekk á með hinum ýmsu veðrum og fegurðin gerði mann orðlausan.
Þar til næst...
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.2.2007 | 14:35
Pólitískir bloggvinir
Undanfarið hef ég fengið nokkrar beiðnir um að gerast bloggvinur - svona viltu vera memm .
Alltaf gaman að því.
Hef þó tekið eftir því að ansi margir bloggarar eru með flokkapólitísk blogg og virðast vera að bæta á sig bloggvinum eins og um atkvæðasöfnun væri að ræða. Það eru jú kosningar rétt fyrir hornið.
Ég ákvað að ég ætla ekki að eignast bloggvini sem eru að blogga um hvað flokkurinn þeirra sé frábær og allir aðrir flokkar glataðir, alla vega ekki fyrr en eftir kosningar.
Þannig að ef þú ert að blogga um hvað flokkurinn þinn er flottur og fínn þá vil ég ekki vera memm.
Til þess að þessi færsla valdi engum misskilningi þá vil ég taka það fram að ég er ekki að abbast út í að fólk tjái skoðun sína um pólitík og pólitísk málefni. Ég vil bara ekki vera tengd inn á kosningaáróður hinna ýmsu flokka og flokksmanna.
Þar til næst...
B - frjáls og óháð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.2.2007 | 08:37
Er að leita að leik...
Þetta er leikur sem við lékum oft í "gamla daga".
Einn er'ann.
Hinir standa efst í tröppum.
Svo er eitthvað með litina - regnbogann eða eitthvað sem ég get ekki munað.
Svo hoppaði maður niður og upp og niður aftur.
Stundum þurfti maður að hoppa langt upp eða langt niður.
Eða byrjaði maður kannski niðri?
Man einhver út á hvað þessi leikur gengur?
Allar ábendingar vel þegnar.
Þar til næst...
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2007 | 14:23
Martröð my a..
Voðaleg dramatík er í öllum fyrirsögnum um leikinn í gær. Mætti halda að það væru eintómar dramadrottningar sem skrifuðu íþróttafréttirnar .
Fréttablaðið slengir fram "Harmleikur í Hamborg", mbl.is talar um "Martröðina frá Kumamoto" og að "Draumurinn sé úti" - erðanú.
Blaðið minnist ekki einu orði á leikinn, eða handbolta yfir höfuð. Hélt ég hlyti að vera að lesa eldgamalt Blað en svo var ekki. Kannski fínt fyrir antisportistana að þurfa ekki að fletta framhjá opnu eftir opnu um handboltaleik í details.
Minni svo bara á að þetta er ekki búið, strákarnir okkar eiga ennþá baráttu fyrir höndum og vonandi koma þeir sterkir til leiks annað kvöld og rústa Rússunum.
Áfram Ísland...
B
![]() |
Martröðin frá Kumamoto endurtók sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2007 | 21:20
Ótrúlegur leikur!
Ég er viss um að lífið mitt hefur styst um a.m.k. 4 vikur, hjartað er alla vega búið að slá fyrir næsta mánuðinn!
Strákarnir okkar voru hreint ótrúlegir! Leikurinn hefði varla geta verið jafnari, þetta hefði geta lent hvorum megin sem var og með pínkuponsulítilli heppni hefðum við haft þetta.
(hendurnar skjálfa svo ég get varla pikkað)
Til hamingju Snorri Steinn, þú varst svo sannarlega maður leiksins.
Vil samt bæta því við að mér þótti þeir allir standa sig frábærlega, vona að þeir nái að sjá það sjálfir þegar mestu vonbrigðin eru runnin af þeim.
Því þetta er nefnilega ekki búið, Rússar á fimmtudaginn og svo vonandi keppni um 5.sætið.
Ég er ennþá ósátt við Geir sem leiklýsanda og legg til að RÚV ráði sér nýjan fyrir næsta leik. Þóttu viðtölin við Snorra Stein og Guðmund bara neikvæð og leiðinleg og er ánægð með Guðmund að hafa ekki látið hann ná sér í einhverja neikvæðni og gagnrýni.
Sama hvernig fór og mun fara þá er þetta ein besta skemmtun sem ég veit. Verst bara hvað þetta tekur á taugarnar.
Þar til næst...
B
![]() |
Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2007 | 22:35
Mig hrjáir
Blogglegt andleysi eða andlegt bloggleysi.
Kannski að handboltinn sogi frá mér alla tjáningarþörf?
Veit að ég fæ útrás fyrir ýmiss tjáningarform yfir leikjunum. Þetta eru einu skiptin sem ég öskra, garga, græt og hlæ án þess að það skipti mig nokkru máli hvað öðrum gæti þótt um það.
Nema kannski þegar dóttirin laumaði að mömmunni að hún væri næstum því hrædd við hana.
Þá reyndi ég að hemja mig.
Í 40 sek.
Þá var skorað og ég missti stjórnina. Og saknaði hennar ekkert.
Knúsaði sponsið bara vel og lengi eftir leikinn og svei mér ef hún var ekki bara komin í ham þarna undir lokin.
Áfram Ísland!
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.1.2007 | 10:22
Stjörnumerkin
Dýrahringurinn byrjar á Hrútnum og endar á Fiskunum. Byrjar illa og endar enn verr, fer úr kjafthætti og frekju yfir í væmni og óákveðni. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn, alla leið frá hræðslulausri rollu yfir í rollulegan fisk!
-----------------------------------------
Hrútsmerkið er rolla, ég meina karlkyns rolla þ.e. hrútur. Rollulegheit eru aftur á móti ekki að finna í eðli Hrútsins (sjá frekar fiskinn). Frekja er í eðli hrúta - ójá. Rollur segja Meeee. Hrútar segja Meeeeeessaðu EKKI í mér.. og þú ættir að sleppa því... hornin geta meitt!
Allir hrútar eru ýtnir og halda að þeir viti allt betur en aðrir þeir ryðjast t.d. alltaf á undan í röð... tramp tramp, skvamp og ýt ýt, komast áfram, vera fyrstir - jebb, það er best að koma sér bara úr veginum.
Hrútsmerkið stjórnast af Mars, sem er guð af "Ég vinn, þú tapar"-heimspekinni.
-----------------------------------------
Nautið er karlkyns belja, ég meina þá auðvitað naut. Beljur gefa manni mjólk, naut gefa manni ósköp fátt nema kannski blakandi nasavængi og hvöss "ég-rek-þau-í-gegnum-þig" horn. Nautin taka það sem þau vilja, þegar þau vilja það - matinn þinn, uppáhaldsstólinn þinn, tíma þinn, orku þína, peningana þína, dótið þitt - þau eiga þetta allt og mega allt. Nautin fljóta í gegnum lífið og éta allt sem á vegi þeirra verður. Sjálfselsku ónytjungar!
Nautsmerkið stjórnast af Venus sem er gyðja dóts og fjármuna.
-----------------------------------------
Tvíburarnir eru alltaf kleyfhuga geðsjúklingar. Þeir geta ekki staðið kyrrir í eina mínútu og svo ljúga þeir stöðugt! Fljóthuga, óákveðnir, flöktandi og algerlega gersamlega klikkaðir. Ekki umgangast tvíbura til lengdar nema þú viljir verða endanlega geðveikur.
Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hún elskar mig, hún elskar mig ekki. Þú munt aldrei vita rétta svarið.
Tvíburamerkið stjórnast af Merkúr, guði geðsjúkra hugarleikja.
-----------------------------------------
Krabbamerkið er krabbi og það er ekkert flókið. Röfl, væl og kvartanir, endalaus fyrirtíðaspenna, hvort sem um er að ræða karlkrabba eða konudýr. Einstaka sinnum þegar tunglið er í réttri stöðu verður krabbinn öskrandi geðveikur. Það er eina hvíldin frá endalausu vælinu í honum. Ekkert er nógu gott, enginn hjálpar nógu mikið til, þú borðar ekki nógu vel, bla bla bla. Það er ekki hægt að þóknast þessu liði. Eina lausnin er að stinga þeim ofan í brennheitt vatn og sjóða þá í potti.
Krabbamerkið stjórnast af hinu spúkí tungli og hinum villtu, vanþakklátu sjávarföllum.
-----------------------------------------
Ljón eru einfaldlega villidýr. Ljón spranga um eins og herrar og ungfrúr, fullkomin, alveg eins og heimiliskötturinn þinn. Ég meina, líttu á köttinn þinn - til hvers eru kettir eiginlega? "Gefðu mér að borða. Sjáðu á mér hárið. Er ég ekki fullkomin? Klappaðu mér, elskaðu mig, leiktu við mig - farðu svo" - hvæs, klór. Þau leika ekki listir, gera ekki það sem þú segir þeim og þau fara úr hárum. Það er allt og sumt.
Ljónsmerkinu er stjórnað af sólinni, herra Geisla sjálfum.
-----------------------------------------
Meyjur eru ekki skemmtilegar. Þær eru hreinar og fölskvalausar og mjöööög smámunasamar. Ekkert og enginn er nógu góður fyrir Meyju. Þær stara á þig með borandi augnaráði og muna alla þína veikleika og galla. Þær þykjast vera vinir þínir og hjálpa þér en allan tímann eru þær flissandi og hlæjandi bakvið þig. Ekki treysta þeim í eina mínútu !
Meyjan stjórnast af Merkúr sem er guð ofurjafnvægis.
-----------------------------------------
Fólk í voginni er alltaf allt úr jafnvægi. Þær reyna og reyna að gera hlutina rétt en þeim tekst það aldrei. Þær bæta smá öðru megin á vigtina, pínu hinum megin og aðeins í viðbót þangað til að þær eiga svo mikið af drasli að þær verða að halda bílskúrssölu eða leigja bás í Kolaportinu. En það gera þær auðvitað aldrei og þær vilja alltaf aðeins meira. Meiri ást, meiri skartgripi, meira gaman, meiri peninga, meiri fegurð, fleiri vini.....
Vogin stjórnast af Venus - sem er gyðja fegurðar sem á fullt af frábæru dóti.
-----------------------------------------
Sporðdrekamerkið er vondur, stingandi sporðdreki, eitrað meindýr, undirförult og hættulegt sníkjudýr myrkursins. ALDREI treysta sporðdreka. Sporðdrekar treysta þér ekki og þeir drepa þig án þess að hugsa sig um tvisvar. Ef þú ferð vel með þá gætu þeir hugsanlega orðið þokkaleg gæludýr - ef þeir eru í búri auðvitað. Sporðdrekinn læðist um allt óséður, kemst inn í hugsanir þínar og drauma og stelur þeim eins og þjófur um nótt. Ertu ekki hrædd(ur)?
Sporðdrekinn stjórnast af Plútó sem er guð kjarnorkusprengjunnar.
-----------------------------------------
Bogmaðurinn er sjálfhverfur, trampandi og hneggjandi hestur. Forðaðu þér úr veginum... af því flest allir Bogmenn eru með augnskjól svo að þeir geta ekki horft til hliðanna og sjá ekkert yfir hvað þeir eru að koma sér í. Þeir segja líka alltaf nákvæmlega það versta sem hægt er að segja í stöðunni einsog; "hei-þú ert miklu ellilegri og feitari en síðast þegar ég sá þig" eða "hvað er þetta eiginlega þarna framan í þér?" Þetta er ekki hreinskilni, þetta er bara grimmd.
Bogmannsmerkinu er stjórnað af Júpiter, hinum upphaflega "ég veit allt best"!
-----------------------------------------
Steingeitin er geit. Leiðinda frek steingeit. Svona geit sem lítur út fyrir að vera gömul og svikul. Þær hengslast upp fjallið já, já, með öllum þeim undirförlu og andstyggilegu trikkum sem þeim dettur í hug. Svo eru þær með uppkrulluð horn, alveg eins og djöfullinn sjálfur. Steingeitur nota og misnota þig á alla mögulega vegu til þess að fá sínu framgengt. Þeim er alveg sama þótt þær þurfi að éta sorp eða þótt það taki óralangan tíma, þeir skulu bara ná sínu fram.
Steingeitin stjórnast af Satúrnusi, hinni eilífu föðurímynd.
-----------------------------------------
Vatnsberinn er villtur vatnastrákur eða stelpa. Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaust fólk. Þeir hafa einungis eina reglu; ef það er gott, þá gera þeir það. Vatnsberar eru alltaf með flókin og greindarleg plön í gangi sem þeir síðan hlaupa frá án þess að hugsa sig um tvisvar. Þeir segja þér eitt og láta síðan einhverja fáránlega hugmynd teyma þá alveg til Timbúktú. Ekki einu sinni láta þér detta í hug að reyna að fylgja Vatnsbera eftir, þetta er blautt, sleipt og geðveikt lið.
Vatnsberinn stjórnast af Úranus, guði eldinga, rafmagns og hjólreiðamanna.
-----------------------------------------
Fiskamerkið ... hmm, fiskur? Eða, eiginlega tveir fiskar að synda í gagnstæða átt- alltaf týndir. Fólk í fiskamerkinu lifir í stöðugum ótta vegna þess þeir vita að hættulegar fiskaætur leynast alls staðar.... fylgist bara með því hvernig þeir skjótast um, snarruglaðir og illa fyrirkallaðir. Fiskar geta ekki verið á beinu brautinni í tvær sekúndur og þú þarft ekki annað en að henda út gómsætri beitu þá eru Fiskarnir mættir á sekúndubroti, tilbúnir að bíta á agnið. Auðveldir þessir Fiskar nefnilega (eiginlega eins og rollur).
Fiskarnir stjórnast af Neptúnusi, guði friðar, ástar og ruglings.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2007 | 20:41
Og hafðu það Geir!
Hvað sagði ég? Hérna fyrir neðan? Ha?
ÞAÐ ER ALLT HÆGT!
Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman að horfa á svona leik - meira svona takk.
![]() |
Íslendingar gjörsigruðu Evrópumeistaralið Frakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)